Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Amma hefur komið víða við á langri ævi og hefur meðal annars komist í nokkurt návígi við goðsagnarkennda komma eins og Krútsjoff og Kastró.
Eftir eitthvert æðiskastið hjá Sameinuðu þjóðunum rauk Krútsjoff á klósettið með miklum látum. Amma varð á vegi hans á ganginum en Sovétleiðtoganum var svo mikið niðri fyrir að hann hrinti ömmu frekar tuddalega til hliðar.
Amma var mátulega hress með kallinn þá en við höfum hann samt alltaf í hávegum.
Kastró var allt annað mál. Amma hlustaði á hann halda eina af þessum margra klukkutíma ræðum og hafði þetta um Fídel að segja:
"Ég skildi ekki orð af því sem hann sagði en ég hef aldrei séð þokkafyllri mann á sviði."
Þannig var nú það. Krútsjoff er löngu dauður, Kastró segist vera hættur en amma er bara nokkuð hress.