»  off record  »  Amma og Fidel
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Amma og Fidel
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008

fidel.jpgAmma hefur komið víða við á langri ævi og hefur meðal annars komist í nokkurt návígi við goðsagnarkennda komma eins og Krútsjoff og Kastró.

Eftir eitthvert æðiskastið hjá Sameinuðu þjóðunum rauk Krútsjoff á klósettið með miklum látum. Amma varð á vegi hans á ganginum en Sovétleiðtoganum var svo mikið niðri fyrir að hann hrinti ömmu frekar tuddalega til hliðar.

Amma var mátulega hress með kallinn þá en við höfum hann samt alltaf í hávegum.

Kastró var allt annað mál. Amma hlustaði á hann halda eina af þessum margra klukkutíma ræðum og hafði þetta um Fídel að segja:

"Ég skildi ekki orð af því sem hann sagði en ég hef aldrei séð þokkafyllri mann á sviði."

Þannig var nú það. Krútsjoff er löngu dauður, Kastró segist vera hættur en amma er bara nokkuð hress.


| 19:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff