Þriðjudagur, 05. febrúar 2008
Vefnum www.badabing.is hefur verið bjargað frá ónefndum hýsingaraðila útá landsbyggðinni sem tók vefinn í fóstur. Vildi ekki betur til en svo að þessi "fagaðili" færði vefinn á milli véla innanhúss - en hafði ekki rænu á að færa kerfið sem sér um virknina með. Beisik.
Eigandinn vefsins badabing.is hefur af þessum sökum ekki geta uppfært vefinn í þónokkurn tíma.
Ég þoli ekki fólk sem kann ekki að vinna vinnuna sína og tekur meira að segja peninga fyrir það, og ég finn verulega til með almenningi sem þarf að berjast við að fá þjónustu hjá sumum Internetfyrirtækjum. Það er nefnilega stundum vonlaust að fá þjónustu nema þú vitir hvað þú ert að tala um - tæknilega - og fólk á almennt ekki að þurfa að vita hvernig þetta virkar allt saman - þetta á bara að virka og ekki orð um það meir! Andskotinn hafi það.
Eigandi badabing.is þekkir hinsvegar fólk sem veit hvernig þetta á að virka og gat bjargað vefnum úr klóm vanhæfu kallanna. Vúhú!
badabing.is virkar í dag og mun halda áfram að virka þar sem vefurinn hefur fengið húsaskjól á stað þar sem svona asnaskapur kemur ekki fyrir.
Lengi lifi badabing.is!
-anna.is