»  off record  »  mars 2008
off record
mars 2008

a long time ago...
Notagildi hauskúpa
Fimmtudagur, 27. mars 2008

pun.jpgSTART NOT - NOR DEEM MY SPIRIT FLED;
IN ME BEHOLD THE ONLY SKULL,
FROM WICH, UNLIKE A LIVING HEAD,
WHATEVER FLOWS IS NEVER DULL
.

Voðaleg læti eru þetta út af hauskúpunni hans Sverris. Mikið hlýtur það fólk að vera þröngsýnt sem telur hauskúpu ekki getað þjónað göfugri tilgangi en hýsa misgáfulegar hugsanir og misbrenglaðar langanir.

Ég ætla svo sem ekki að reyna að halda því fram að smekklegt sé að nota höfuðkúpur undir sælgæti eða sígarettustubba. Byron færði hins vegar sannfærandi rök fyrir því að virðulegri drykkjarílát undir áfengi en hauskúpur væru vandfundin.

Eitt er í það minnsta hægt að nota hauskúpur undir margt fallegra og betra en hugsanir fólks.


Aftur og nýbúinn
Fimmtudagur, 27. mars 2008

Eftir að blogg varð að almennri iðju óskrifandi heimskingja var eiginlega ekki um annað að ræða en leggja árar í bát. En eftir 5 ára blogg eða svo er auðvitað ekki hægt að hætta bara að tilefnislausu.

Opinbera skýringin var sú að hýsingaraðilar klúðruðu Badabing.is illilega (en eru samt enn að senda gíróseðla fyrir hýsingu) en hið rétta er auðvitað að ég hætti að blogga í mótmælaskyni við ótímabært blogghætt Ágústs Borgþórs.

Hann er nú góðu heilli upprisinn á Eyjunni og til þess að lýsa velþóknun minni á dramatískan hátt hef ég ákveðið að hefja bloggskrif á ný. Afköstin verða samt varla mikil þar sem allar mínar tómstundir fara nú í að reyna að skilja Facebook-ið sem ég var að stofna til þess að vera hip og kúl. Bloggið er víst soooo last year og þetta glórulausa vinarúnk er það nýjasta. Bugger me with a fishfork.

Langtímaverkefni er svo að koma öllu inn sem ég hef birt á prenti síðasta árið. Þar mun mest fara fyrir Mannlífsstöffi og ég get glatt Ástþór Magnússon með því að viðtalið við forseta vorn verður bráðum aðgengilegt hér,


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff