Fimmtudagur, 27. mars 2008
START NOT - NOR DEEM MY SPIRIT FLED;
IN ME BEHOLD THE ONLY SKULL,
FROM WICH, UNLIKE A LIVING HEAD,
WHATEVER FLOWS IS NEVER DULL.
Voðaleg læti eru þetta út af hauskúpunni hans Sverris. Mikið hlýtur það fólk að vera þröngsýnt sem telur hauskúpu ekki getað þjónað göfugri tilgangi en hýsa misgáfulegar hugsanir og misbrenglaðar langanir.
Ég ætla svo sem ekki að reyna að halda því fram að smekklegt sé að nota höfuðkúpur undir sælgæti eða sígarettustubba. Byron færði hins vegar sannfærandi rök fyrir því að virðulegri drykkjarílát undir áfengi en hauskúpur væru vandfundin.
Eitt er í það minnsta hægt að nota hauskúpur undir margt fallegra og betra en hugsanir fólks.