»  off record  »  júní 2008
off record
júní 2008

a long time ago...
Við erum þá tveir
Föstudagur, 06. júní 2008


Álftanes - Týndur.

Tóti var á leið til dýralæknis í Kirkjulundi þegar hann hljóp í burtu.

kattholt.is


Rómantík
Miðvikudagur, 04. júní 2008

Alveg er það dæmigert fyrir einarðan fylgisvein rómantísku skáldanna að andagiftin skuli aldrei vera meiri og hugsunin skarpari en í helgreipum saknaðar og tómleika.

Núna er því mómentið til þess að byrja á ljóðabókunum tveimur Vegamótum í myrkri og Helför í nafni lífsins. Vegamót í myrkri er búin að vera óskilgreint renghlífarhugtak yfir líf mitt hjá okkur Halldóri í mörg ár og við Hrafn súmmeruðum líf mitt upp í seinni titlinum um daginn. Ég sat yfir vondri nautasteik á Oliver og hann var í Trékyllisvík.

Veit ekki alveg í hvorri bókinni þetta mun enda:

Sælir eru einfaldir

Jæja, fuck me
þá fer ég einn og einmana út í sólina.
Ég vildi ég væri Geir Ólafsson.


Eins gott
Mánudagur, 02. júní 2008

vegna þess að ekkert er verra en að tapa fyrir Fram. Hallgrímur Helgason getur skrifað endalausar Safamýrargrobbsgreinar í Fréttablaðið og dissað KR um leið. Breytir því ekki að það er kúl að vera KR þar sem það er þjóðaríþrótt hjá öðrum að hata liðið.


A failure to communicate
Mánudagur, 02. júní 2008

Ekki ætla nú laugardagskvöldin að verða daufari þótt búsið sé komið út úr jöfnunni.

Fékk þetta SMS úr númeri sem ég þekki ekki:

Heimilid er saltfélag hittir la. sammi reyndi ad runka sér á læri mínu. Foi gras hittir herbalife. Sakna g

Þetta hljómaði svo spennandi að ég mátti til með að svara:

Thu segir frettir but who the fuck cares?

Eitthvað kom þetta kappanum á óvart og hann spurði að bragði:

Ertu reid?

Þegar þarna var komið við sögu kunni ég ekki við að spila áfram með greyið og segja honum að hætta að drekka strax eða koma aldrei aftur heim. Hlýtur að vera batinn sem er byrjaður að hamla illsku:

Orugglega ekki enda er eg "hann" sidast þegar eg gadi

Þá fór þetta nú að styttast í annan endann:

Einmitt. Gaman ad tessu.

Fleiri urðu skeytin ekki milli mín og þessa nýfundna vinar míns í gleðinni.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff