Mánudagur, 02. júní 2008
Ekki ætla nú laugardagskvöldin að verða daufari þótt búsið sé komið út úr jöfnunni.
Fékk þetta SMS úr númeri sem ég þekki ekki:
Heimilid er saltfélag hittir la. sammi reyndi ad runka sér á læri mínu. Foi gras hittir herbalife. Sakna g
Þetta hljómaði svo spennandi að ég mátti til með að svara:
Thu segir frettir but who the fuck cares?
Eitthvað kom þetta kappanum á óvart og hann spurði að bragði:
Ertu reid?
Þegar þarna var komið við sögu kunni ég ekki við að spila áfram með greyið og segja honum að hætta að drekka strax eða koma aldrei aftur heim. Hlýtur að vera batinn sem er byrjaður að hamla illsku:
Orugglega ekki enda er eg "hann" sidast þegar eg gadi
Þá fór þetta nú að styttast í annan endann:
Einmitt. Gaman ad tessu.
Fleiri urðu skeytin ekki milli mín og þessa nýfundna vinar míns í gleðinni.