»  off record  »  Læknir hengdur fyrir smið
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Læknir hengdur fyrir smið
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008

Ég er nú hvorki berdreyminn né skyggn en þegar ég horfði á hersinguna sem þaggaði niður í Tjarnarkvartettinum debúttera á Kjarvalsstöðum í janúar hafði ég á orði við einhverja kollega mína að þetta gæti ekki enst til lengdar.

Nú er ég bara orðinn svo góður og melló að mig langar ekkert frekar en alla hina sem vissu frá upphafi að þessi meirihluti væri feigðarflan til þess að segja „told you so“. Þetta pólitíska raðhópslys í Ráðhúsinu er líka löngu hætt að vera fyndið enda takmörk fyrir því hversu lengi er hægt að teygja lélega brandara. Þá kafnar líka djókurinn í öllum þeim fjármunum, kaupum á ónýtum húsum og geggjuðu hringli sem þetta hefur kostað borgarbúa.

Talandi um ys og þys út af engu og eftir alla geggjunina erum við komin aftur á byrjunarreit fyrir utan það að peðið Villi er kominn að endamörkum taflborðsins og hefur því breyst í drottninguna Hönnu Birnu. Og svo er Bingi illu heilli horfinn á braut og Óskar trésmiður og prófkjörslúser kominn í hans stað.

Karmað yfir þessum nýja meirihluta er hins vegar ekki fallegt og sjálfstæðismenn munu gjalda fyrir það í næstu kosningum, þessu lífi eða í því næsta að ginna aumingja Ólaf út í þessa klikkun. Í meðvirkni minni get ég ekki annað en fundið til með Ólafi sem endar alltaf sem fórnarlamb. Og nú hefur gírugt og valdagráðugt íhaldið svo sannarlega hengt lækni fyrir smið.

Auðvitað mun þessi meirihluti halda til enda en þessi mambó dugir þó varla til að rétta úr kútnum í skoðanakönnunum þar sem borgarbúar eru fyrir lifandis löngu komnir með upp í kok af valdabröltinu. Pólitík verður svo sérstaklega ógeðsleg þegar hún hættir alveg að snúast um hugsjónir, málefni og hag fjöldans. Eina huggunin harmi gegn núna er að við sem borgina byggjum stóðum frammi fyrir ýmsum kostum, eiginlega öllum jafnslæmum. Og sátum uppi með þann versta þangað til í dag.

Ætli það séu ekki einna helst við blaðamennirnir sem getum glaðst yfir þessu. Fréttirnar og samsæriskenningarnar koma á færibandi. Adrenalínið flæðir um æðarnar og deddlænin verða ennþá skemmtilegri. Maður ætti eiginlega að senda þessu liði ostakörfu með þakklæti fyrir að minna mann reglulega á hversu gaman það getur verið að vera blaðamaður. Maður kyngir fúslega einni og einni gúrku þegar borgarpólitíkusar færa manni ítrekað svona trakteringar í eftirrétt.


| 1:00 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff