»  off record  »  Trönuhjallarúnkarinn og Rambó hinn íslenski
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Trönuhjallarúnkarinn og Rambó hinn íslenski
Fimmtudagur, 25. september 2008

Ég vann um langt árabil á bensínstöð eins og frægt er orðið. Kúnnarnir voru flestir kórónaðir fábjánar og upp til hópa leiðinda pakk. Þeir tveir eftirminnilegustu voru súrrandi geðveikir. Annar varð síðar frægur sem Trönuhjallarúnkarinn og var bara til óþæginda. Hinn þótti mér vænt um, ekki síst eftir að hann fékk Rambó á heilan og gerði sig líklegan til að grípa til róttækra aðgerða.

Trönuhjallarúnkarinn bruddi Fánavindla í gríð og erg og át flatkökur og lifrarpylsu með. Þessu skolaði hann niður með seigum Kópavogslanda og gerði óheiðarlegar tilraunir til þess að drepa okkur Óla úr leiðindum með þjóðarsálardrykkjurausi sínu. Ég hef ekki haft neinar spurnir af þessu skoffíni síðan Símon Birgisson, nú listaspíra, fékk hann til að fækka fötum í gamla DV eftir að hann var orðinn alræmdur í gettóinu fyrir að standa úti í stofuglugga og fitla við sig.

Gunni Rambó var af allt öðru kalíberi. Ég var mörg ár að fatta að hann væri kolcrazy enda kom hann iðulega vel fyrir. Spilaði óperur í botni í Lödu Samörunni sinni og virkaði eins og geðstirður jarðfræðikennari í menntaskóla. Þegar geðheilsunni fór að hraka fyrir alvöru kom síðan í ljós að í Gunna bærðist meinlaust fól.

Einhvern tíman var starfsmaður á plani afleysingarmaður sem hafði ekki vit á því að sýna þessum kúnstuga fastakúnna tilhlýðilega virðingu. Gunni brást vitanlega hinn versti við, hallaði sér brúnaþungur og grafalvarlegur að bíldælingnum og spurði: „Þekkirðu hann Rambó? Veistu hvað hann gerði? Hann sprengdi bensínstöð í loft upp.“

Starfsmanni á plani þótti þetta ægilega fyndið og gerði lítið úr okkar manni sem hvarf á braut hinn illasti. Dælutittnum leist hins vegar ekkert á blikuna þegar Gunni kom daginn eftir að kaupa sér filterslausan Camel með rautt bandana bundið um ennið. Alveg eins og Rambó. Síðan kveikti hann sér í sígó við eina bensíndæluna og horfði ógnandi á bensínkallinn. Sá var þó ekki dauður úr öllum æðum og benti Rambó á að ekki mætti reykja á planinu. Gunni horfði þá djúpt í augun á gaurnum í drykklanga stund áður en hann rak út úr sér tunguna og drap í sígarettunni á tungubroddinum.

Dæludrengurinn óttaðist um líf sitt og limi hverja klukkustund eftir það þessa viku sem hann var í afleysingum hjá okkur. Ég beið hins vegar spentnur eftir því að Gunni myndi láta verða af hótunum sínum og sprengja helvítis kumbaldann upp svo maður fengi frí í nokkra daga.


| 22:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff