Mánudagur, 01. september 2008
Sem þurrkaðri fyllibyttu þótti mér ósköp vænt um að að heyra fréttina af því að ÁTVR sæi ekki ástæðu til þess að aðhafast sérstaklega í máli verslunarstjóra vínbúðar á Akureyri sem varð fyrir því óláni að varan sem hann og brennivínsverslun ríkisins höndla með breytti honum í svín.
Fyrir það fyrsta væri auðvitað galið að ÁTVR færi að refsa manninum fyrir að verða fyrir þeim áhrifum sem ætlast er til að söluvaran hafi á neytendur en fyrst og fremst gladdi mig að sjá að vínsalan sýndi vandamáli mannsins ákveðin skilning. Við alkarnir eigum okkur nefnilega ekki viðreisnar von nema okkur sé sýndur skilningur.
Ég fatta samt ekki alveg hvað fékk manninn til þess að vilja starfa hjá ÁTVR þar sem hann var víst óvirkur alkóhólisti áður en hann datt íða og lamdi undirmenn sína í góðum gleðskap. Óvirkur alki hefur auðvitað ekkert með það að gera að eyða öllum sínum dögum innan um áfengi. Alki í góðum bata þarf samt ekkert að pakka sér í bómull en samt er óþarfi að storka örlögunum með því að hanga daglangt í himnaríki freistinganna. Og svona ef maður pælir í því þá eiga alkar, hvorki virkir né óvirkir, að vinna hjá ÁTVR. Slíkt er tómt rugl.
Soldáninn lét geldinga sjá um kvennabúr sín á sínum tíma og það segir sig sjálft að það er álíka skynsamlegt að leyfa virkum alkóhólista að starfa hjá ÁTVR og að hleypa Casanova á Viagra í kvennabúrið. Gallinn við óvirka alkann er svo aftur að hann er ekki alvöru geldingur þegar áfengi er annars vegar og þótt hann spóki sig púnglaus innan um veigarnar þá geta honum fyrirvaraæaust vaxið ofsalegar eldhreðjar eins og hefur nú komið á daginn fyrir norðan.
Þannig að þegar maður pælir í því þá er þessi skilningur sem ÁTVR sýnir nýfundna svíninu sínu ekkert sérstaklega krúttlegur. Svíninu er enginn greiði gerður með því að fá að velta sér upp úr göróttri forinni með samþykki yfirboðara sinna og allt eins líklegt að búðin fyrir norðan verði að einni allsherjar stíu.
Það er ekkert grín að vera svín og þeir sem eru með beikon í hausnum ættu ekki að eyða dögum sínum innan um ómælt magn áfengis.
| 20:49 |