Fimmtudagur, 16. október 2008
Í gegnum tíðina hef ég oft orðið dapur, ef ekki hreinlega þunglyndur, yfir því að eiga ekki neitt. Leiðst að búa inni á öðrum og þvælast á milli leiguíbúða.
Á þeim myrku stundum sem eignaleysið og afbrýðisemin út í þá sem áttu eitthvað voru að buga mig reyndi ég að hugga mig með því að hugsa um mig og Bobby McGee og að freedoms just another word for nothin left to lose.
Þetta virkaði nú aldrei neitt sérstaklega og mér fannst ég ekkert frjáls og ef svo væri þá væri frelsið tæpast þess virði. Þessi staða hefur gerbreyst á síðustu vikum og aldrei hefur verið jafn gott að eiga ekki neitt og akkúrat núna. Og hafa engu að tapa. Nú er ég loksins búinn að fatta hvaða frelsi þetta er sem Bobby McGee var að tala um og hversu ofboðslega mikils virði það er.
| 15:43 |