Föstudagur, 17. október 2008
Heimspekingurinn, blaðamaðurinn, lífsleiknikennarinn minn og einkaþjálfari, Eiríkur Jónsson, er byrjaður að gera sig breiðan hérna á dv.is blogginu og ryður manni að sjálfsögðu út af kortinu með three linerunum sínum.
Færslur EIR rjúka upp mest lesið listann og frá því hann byrjaði hef ég ekki sést þar. Þetta er ekki gott fyrir egóið og ef ég fer ekki að finna badabing mojoið þá þarf ég að sætta mig við að vera neðanmálsgrein við blogg Eiríks. Samt hefur hann bara bloggað í tvo daga en ég í sjö ár.
Ég er nú samt öllu vanur þegar kemur að þessum manni en þegar Talstöðin var og hét voru Eiríkur og Reynir Traustason með morgunþátt án hliðstæðu á laugardögum. Þessir þættir voru alveg á pari við geggjaða þætti Eiríks og Sigga Hall á Bylgjunni fyrir langa löngu og munu lifa í minningu þeirra sem á hlýddu um ókomin ár. Í hægverski sinni hélt Eiríkur því vandlega til haga að hann væri aðal og Reynir væri þarna ígildi „svarta mannsins með gítarinn hjá Jay Leno.“ Fyndin líking en Eiríkur og Reynir voru margfalt betra dúó en Jay og Kevin.
Hvað um það. Ég og Kristján Hjálmarsson, stórvinur minn og fréttastjóri á Fréttablaðinu, vorum með þátt strax á eftir þessum brandaraköllum og áttum auðvitað ekki sjéns. Ég útskýrði einhvern tíma þessa vonlausu stöðu okkar félaganna þegar ég afkynnti kempurnar og líkti þessu við að þurfa að ganga á svið eftir að Jerry Lee Lewis hefði lokið sér af. Í því sambandi rifjaði ég upp ógleymanlegt atriði úr kvikmyndina Ofsalegar eldhreðjar þar sem Dennis Quaid lék Jerry Lee. Þar var Jerry brjálaður yfir því að fá ekki að slútta einhverju prógrammi þar sem Chuck Berry var vinsælli og ætti í krafti þeirrar stöðu að klára. Jerry fór sturlaður á svið, fór hamförum á píanóinu og endaði með því að kveikja í slaghörpunni. Síðan gekk hann af sviði með hljóðfærið í ljósum logum og hreytti í Berry „top that ni...r“
Þetta var nú það sem við Stjáni máttum búa við og nú er ég aftur orðinn niðurlútur Chuck Berry sem rembist við að blogga á meðan lyklaborð Eiríks er í ljósum logum.
| 15:40 |