Mánudagur, 20. október 2008
Jákvæða fólkið hefur undanfarið glaðst yfir því að konum sé raðað í æðstu stjórastöður í nýju bönkunum og ekki laust við að þessi óvænta stefnubreyting í ríkisbubbaveldinu sé túlkuð sem einhvers konar jafnréttissigur.
Reynslan grefur þó undan gleðinni og miklu líklegra er að nú verði bankastjórastörf svo illa launuð að ríku, feitu körlunum dettur ekki til hugar að þiggja þau. Gjaldþrota bankar geta varla farið að greiða stjórum sínum ofurlaun eða hvað? Og þá verða fínu djobbin auðvitað kvennastörf um leið.
Það er nú allur sigurinn.
| 15:51 |