Mánudagur, 20. október 2008
Drakk svakalega mikið kaffi með félaga mínum sem ég hef ekki hitt í nokkur ár í gær. Hann hafði verið býsna vel stæður, ekki síst vegna þess að hann fékk vænan föðurarf sem hann vitaskuld kaus að ávaxta í hlutabréfum og einhverju svoleiðis dóti.
Einhverjir milljónatugir. Þetta er allt farið núna en hann á húsið sitt og jeppann enn og skuldar frekar lítið á íslenskan mælikvarða.
„Ég missi ekki svefn yfir þessu og ekki hvarflar að mér að kála mér. Ég var ekkert að nota þessi bréf hvort eð er.“
Þetta er attitjúdið sem gæti bjargað þjóðinni frá sturlun og í því survival of the fittest sem framundan er þá er æðruleysið eina vitræna svarið.
| 15:56 |