»  off record  »  Óbragð
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Óbragð
Mánudagur, 13. október 2008

Ég er svo lifaður að ég sé feigð fólks og fyrirtækja úr mílu fjarlægð og verð nú að segja eins og er að mér líst ekkert á framtíðarhorfur nýju ríkisbankanna. Það eitt að Glitnir skuli nú heita Nýji Glitnir ber dauðann í sér og segir allt sem segja þarf um hversu lítil söguþekking og takmörkuð framtíðarsýn er hjá þeim sem hafa tekið við bankanum.

Og miðað við frumleikann á þeim bænum verður Landsbankinn að Nýja Landsbankanum og Kaupþing að Nýja Kaupþingi.

Eitt stærsta klúður samanlagðrar viðskiptasögu veraldarinnar var sú grilla þeirra hjá Coca-Cola á sínum tíma að breyta 100 ára gömlu bragðinu á vinsælasta gosdrykk heims. Eitthvað hafði væmna viðbjóðssullið Pepsi verið að kroppa í markaðshlutdeild Coke og þá var rokið til og Kókið fært nær Pepsí-inu og það fékk væmið eftirbragð. Þessi óskapnaður var kynntur til sögunnar sem New Coke og átti nú heldur betur að slá í gegn og leysa gamla sullið af hólmi.

Þetta markaðsplott heppnaðist nú ekki betur en svo að heimsbyggðin fór á hliðina, kókistar allra landa hömstruðu gamla Kókið og létu þau boð út ganga að New Coke færi aldrei inn fyrir þeirra varir. Til þess að bjarga því sem bjargað varð var gamla Kókið sett aftur á markað sem Coca Cola Classic en nýja Kókið fékk að fjara rólega út. Í dag er New Coke bara slæm minning og við drekkum enn gamla Kókið og höfum ekki yfir neinu að kvarta.

Þetta bankabix er eitthvað svipað, sérstaklega ef marka má þá sem nú hafa tapað bönkunum sínum en þeir segja bankana alls ekki hafa verið dauða þegar ríkið gleypti þá og setti „New“ fyrir framan fyrirtækjanafnið. Auðvitað voru þessir bankar ekkert Coca-Cola en byrjunin á björgunaraðgerðunum lofar ekki góðu og í ljósi gosdrykkjasögunnar gætu nýju bankarnir orðnir verri en þeir „gömlu“. Óbragðið kemur þó fyrst þegar ákveðið verður að fara annan einkavæðingarhring, taka „new“ úr nafni bankana og selja vel völdum einkavinum Glitni Classic.


| 15:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff