Sunnudagur, 19. október 2008
Davíð hefur sjálfsagt hlegið dátt í Svörtuloftum þegar hann horfði á þessar fáu hræður krefjast afsagnar hans á Austurvelli í gær. Doddsson hefur staðið af sér mun öflugri mótmæli en þessi og getur auðveldlega, kæri hann sig um, túlkað mótmælin sem stuðningsyfirlýsignu við sig og beinlínis hvattningu til að sitja sem lengst.
Maður vissi svo sem alveg að við værum í djúpum skít en ef Kolfinna Baldvinsdóttir, Hörður Torfa og Dr. Gunni eru þau sem eiga að leiða hina óhjákvæmilegu uppreisn þá erum við royally fucked. Það var nógu slæmt að Bubbi skyldi ryðjast upp á dekk með gítarinn en eftir að sá brandari mislukkaðist hélt maður að tími væri kominn á alvöru alþýðjuhetjur til þess að leiða hræddan múginn.
Segir allt sem segja þarf um sannfæringuna og slagkraftinn að Dr. Gunni „lánaði“ nafn sitt í þennan fíflagang og hafði ýmislegt annað að gera en láta sjá sig í fámenninu á Austurvelli.
| 15:38 |