»  off record  »  Þarf Bond viagra?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þarf Bond viagra?
Föstudagur, 07. nóvember 2008

Ég varð fyrir vonbrigðum með Quantum of Solace en er jafn tilfinningalega áttavilltur og Bond sjálfur og tókst að skrifa mig upp í 4 stjörnu dóm í DV.

Ég er bara svo veikur fyrir Daniel Craig að tilfinningarnar tóku af mér öll völd og svo er ég auðvitað mjög fylgjandi þeim breytingum sem verið er að gera á persónunni og myndabálknum og fann mig því knúinn til að ítreka stuðning minn.

Eiríkur félagi minn Jónsson er ekki sammála. Hann var ekki nógu hress með Quantum vegna þess að Bond er hættur að vera fyndinn. Hann segir að Bond eigi að snúast um brandara og brassbönd. Tom Jones eigi að syngja Bond lagið og gellurnar eigi að vera þrýstnar en ekki eins og ný-feministar í skárri kantinum. Hann hefur margt til síns máls og auðvitað hefði Bond alveg getað haldið áfram að vera brassaður en ég fíla hann betur svona kaldan og húmorslausan.

Annars sýnist mér Quantum of Solace helst fundið það til foráttu að Bond má ekki lengur vera að því að sofa hjá Bond-gellunum. Mér finnst það nú alveg OK og taldi víst að hann væri bara enn í ástarsorg eftir að tíkin hún Vesper dó. Miðað við hugarfar gamla Bonds er þó líklegra að ný-femínistarnir hans Eiríks kveiki bara ekki í kappanum. Hann sé meira fyrir Úrsúlur og Xeniu Onatop.

Þessi pirringur yfir aðgerðarleysi 007 pa sengekanten er samt ansi skondinn í ljósi þess að Bond var gersamlega ofvirkur í On Her Majesty´s Secret Service þar sem hann sængaði hjá tugum kvenna á afskekktu heilsubæli í Ölpunum. Þar var lítið við að vera og allar vildu konurnar læsa klóm sínum í Bondarann þannig að hann þurfti að útbúa stundarskrá til þess að geta sinnt þeim öllum.

Og þrátt fyrir að vera James Bond endaði þessi ringulreið með því að kappinn brann út og hreinlega gat ekki meir. Þrátt fyrir alla þó óbeisluðu kynorku sem leyst var úr læðingi í þessu fjallvirki Blofelds höfnuðu áhorfendur myndinni þannig að það er ljóst að Bond þarf að finna einhvern meðalveg í kynlífinu til þess að halda öllum góðum. Þessi vanmetnasta Bond-mynd seríunnar leið þó vitaskuld fyrst og fremst fyrir að þar var George Lazenby í þeirri vonlausu stöðu að vera arftaki Sean Connery. Sem var að sjálfsögðu vonlaust.

En On Her Majesty´s Secret Service er djarfasta tilraunin til þess að breyta til og gera eitthvað nýtt við Bond þar til Casino Royale kom til sögunnar. Myndin öll er einnstór póst-módern brandari sem spilar endalaust á einmitt þessa vonlausu aðstöðu sem blessaður kallinn hann Lazenby var í. Daniel Craig hefði kannski getað púllað þetta en hann var bara 1 árs þegar þessi tilraun var gerð og ekki alveg kominn í gírinn.


| 16:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff