»  off record  »  Gádeamús
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Gádeamús
Mánudagur, 24. nóvember 2008

Heldur þykir mér snautlegt og fúlt fyrir mig að eftir að hafa bloggað með skítkasti og persónuárásum í rúm sex ár skuli umdeildasta færslan mín til þessa snúast um nett MR skens.

Viðbrögðin voru svosem fyrirsjáanleg þar sem MR-ingar eru skrýtnar skrúfur og sjálfsagt fyrirfinnst ekki annar hópur hér á landi sem er svo upptekinn af framhaldsskólanum sínum að hann skilgreini sig út frá honum frá innritun til grafar.

Kommentakerfið við færsluna er stútfullt af froðufellandi MR-ingum sem bera latínuskólanum nú ekki fagurt vitni og að mér læðist sá grunur að eitthvað hafi íslenskukennslu í hinu fornfræga menntasetri hrakað. Þegar ég hékk þar einn vetur í óupphitaðri stofu, sem áður var fatahengi, og þótti brúkleg fyrir busa sem komu úr úthverfum og nágrannasveitarfélögum græddi ég mest á kennslu í stílbrögðum og retórískum mælskubrögðum og kann skólanum bestu þakkir fyrir. Vitna meira segja stundum í Hans Gruber úr Die Hard þegar vel liggur á mér og kalla þetta benefits of a classical education. Gróðinn af MR-menntuninni var þó jafnan mestur á börum úti í heimi þegar ég fékk ókunnunga Þjóðverja til þess að splæsa á mig í glas fyrir að fara með Lorelei og Heidenröslein.

Eitthvað virðist lesskilningi MR-inga vera að hraka fyrst þeir kjósa upp til hópa að taka þessa yfirveguðu og vandlega ígrunduðu söguskoðun mína til sín persónulega. Óheppilegt en ágætt samanburðardæmi er til dæmis að ef maður skrifar að Þjóðverjar hafi verið nazistar þá áttar væntanlega flest sæmilega greint fólk sig á að um tiltekinn hóp er að ræða en ekki Helmut pylsugerðarmann í Heidelberg.

Menntskælingunum er vitaskuld frjálst að fá útrás fyrir þessa kómísku gremju sína á kommentakerfinu og ég sá nú enga sérstaka ástæðu til þess að æðrast yfir þeim ósköpum. Ekki síst þar sem pabbi, sem var í D-bekknum með Davíð á sínum tíma, hefur ekki séð ástæðu til að hringja og skamma mig og ekkert af þeim fjölmörgu nánu skyldmennum mínum sem hafa útskrifast frá skólanum virðist hafa tekið skensið til sín. Eftir að góður vinur minn, faðir yndislegrar stúlku sem stundar nám við MR, benti mér áhyggjufullur á að þetta væri að fara svona svakalega öfugt ofan í ungar sálir þótti mér samt rétt að reyna að beina lesblindum menntskælingum á að þeir eru í hópi með Hemut pylsugerðarmanni og bera, samkvæmt mínum kokkabókum, enga sérstaka ábyrgð á þeim pólitíksa hráskinnaleik sem hófst við Lækjargötuna fyrir áratugum og stendur enn.

Annars er í raun ekkert um þetta að segja annað en:


Populus me sibilat, at mihi plaudo
Ipse domi simul ac nummos contemplar in arca.


| 16:27 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff