»  off record  »  MR er æxlið
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
MR er æxlið
Föstudagur, 21. nóvember 2008

Í örvæntingarfullri og fálmkenndri leit að sökudólgum að baki hallærinu sem við okkur blasir hafa margir verið nefndir til sögunnar og meðal annars hefur einhverjum orðið tíðrætt og Vökuskrílinn í stúdentapólitíkinni og jafnvel Verzlunarskólagengið lið uppalið í fílabeinstrunir frjálshyggjunnar við Ofanleiti.

Einhverra hluta vegna sést öllum yfir að rót þeirrar einkavinavæðingar, spillingar og fyrirgreiðslupólitíkur sem hefur nú komð heilli þjóð á vonarvöl liggur undir gömlum timburkumbalda við Tjörnina. Menntaskólinn í Reykjavík er sá fjósbiti sem púkarnir fitnuðu á áður en þeir lögðu landið undir sig með hörmulegum afleiðingum.

Ég var búinn að gleyma þessu sjálfur og mundi varla eftir því að ég var í þriðja bekk í þessari „elstu og virtustu“ menntastofnun þjóðarinnar, eins og MR-ingum sjálfum er svo tamt að lýsa skólanum sínum, árið sem, Birgir Ármannsson var kosinn Inspector Scolae. Á fúnum göngum skólans var okkur busunum tilkynnt með lotningu að Birgi skyldum við kjósa þar sem þar færi framtíðar formaður Sjálfstæðisflokksins, þingmaður og án efa forsætisráðherra. Þannig væri það nú bara.

Kennarar jafnt sem eldri nemendur gerðu mikið úr því að MR framleiddi forsætisráðherra og landsfeður á færibandi og í raun væri varla hægt að komast til pólitískra metorða án stúdentsprófs úr MR. Þessu fylgdu langar nafnarunur áberandi póltiíkusa sem þuldar voru af mikilli lotningu og allt þótti þetta ofboðslegt, dúndur og æði.

Þessi geggjun varð til þess að ekki var komið að jólaprófum þegar ég ákvað að í þessum skóla yrði ég ekki lengur en eitt ár enda fannst mér á stundum að ég vær alls ekki í framhaldsskóla heldur ungliði í Hitlersæskunni. Hætti svo í maí og fór að dæla bensíni og útskrifaðist úr MK sem getur vart gortað sig af öðru en Fræbblunum, Flosa Eiríks og Dr. Gunna ef ég man rétt. Ég get samt ennþá þulið Lorelei bæði á þýsku og íslensku þannig að ekki var nú tíma mínum í MR alveg varið til einskis.

Skelfileg áhrif MR á Íslandssöguna rifjuðust upp fyrir mér í morgun þegar ég las nærmynd af Geir H. Haarde í DV og sá þessa mynd þar sem fráfarandi Inspector, Davíð Oddsson, afhenti arftakanum Haarde veldisprotann. Ætli litlir MR-ingar gangi roggnir um gangana þessa dagana og grobbi sig af afrekum bestu og valdamestu sona þessa fornfræga skóla? Nú þegar við erum öll fórnarlömb gamalla væringa og klíkustríða menntaskólastráka.


| 16:57 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff