»  off record  »  Múrinn fallinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Múrinn fallinn
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008

Ég hef í tæplega hálft ár barist við að bæta á mig kílóum og hef nú loksins rofið 70 kílóa múrinn sem ég var nú farinn að óttast að yrði mér ofviða. Samkvæmt mælingu í Vesturbæjarlauginni í gær er ég 70.55 kíló þannig að ég hef bætt á mig heilum 8 kílóum frá því ég byrjaði í EIR-forminu í maí.

Vart þarf að taka fram að þyngdaraukningin er ekki í speki heldur massa þótt six-packið sé ekki farið að gera vart við sig enn.

Vigtin sýndi 67,55 kíló þann 24. september þannig að það hefur tekið óratíma að landa þessum þremur kílóum og ég hef síðustu vikur kastast á milli 68,5 og 69,5 og var við það að gefa upp alla von en stefni nú ótrauður á 75 kílóin í mars. Þá þarf að breyta um kúrs þar sem planið var nú aldrei að verða feitur.


| 16:16 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff