Föstudagur, 14. nóvember 2008
Áhrifaríkt hjá Skjá einum að tefla fram stillimynd á fimmtudagskvöldi sem er eina almennilega sjónvarpskvöldið á þeirri feigu stöð til þess að minna okkur á að við getum illa lifað af án stöðvarinnar.
Hefði stillimyndin verið á skjánum á miðvikudagskvöld hefði manni ekki getað verið meira sama en það kemur auðvitað illa við mann þegar maður er sviptur House og CSI:Miami. Ekki laust við að maður hafi hugsað þeim Páli Magnússyni, blóðsugugreifa í Efstaleiti, og Þorgerði Katrínu, menntamálaráðherra, þegjandi þörfina fyrir að vera að blóðmjólka Skjá einn svona með brölti RÚV á auglýsingamarkaði.
Svo mundi maður eftir því að Skjár einn er viðskiptamódel sem hefur aldrei gengið upp nema með innspýtingu illa fengis fjár frá Landssímanum þannig að það er kannski full seint að byrja að væla núna og kenna RÚV um allt. RÚV var á markaðnum þegar Skjár einn byrjaði þannig að bissnissmódelið hlýtur að hafa tekið tillit til þess. Sjónvarpsstöð sem ekki er hægt að reka með sóma nema fyrir stolið fé þarf auðvitað eitthvað að endurhugsa en þessi stillimynd í kvöld held ég að geri nú lítið annað en sannfæra mig um að ég geti lifað góðu lífi án Skjás eins, House og CSI.
| 17:00 |