»  off record  »  President Palmer vann
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
President Palmer vann
Miðvikudagur, 05. nóvember 2008

Væntingarvísitalan í heiminum hlýtur að hafa rokið upp í dag í kjölfar sigurs svarta mannsins. Ég ætla amk að skipa mér í flokk með Illuga og spá því að heimurinn muni taka stórtækum breytingum til batnaðar á næstunni. Ekki síst vegna þess að í mínum huga voru Bandaríkjamenn að kjósa hinn gegnheila Palmer forseta úr 24 þegar þeir völdu Obama.

Það er nefnilega alveg sama hvað stjórnmálaskýrendur og spekingar þusa. Poppkúltúrinn stjórnar heiminum og þess vegna vann Obama og þess vegna hef ég verið pollrólegur yfir þessu öllu saman. Var auðvitað löngu búinn að sjá þetta fyrir vegna þess að í þeim hremmingum sem veröldin er í dag dugir ekkert minna en David Palmer. Auk þess sem sá sem hefur Jack Bauer að baki sér getur ekki tapað.

McCain var samt alltaf að vinna á hjá mér enda flottur kall og ég er veikur fyrir stríðshetjum. Ef Obama er Palmer þá er McCain Rambó á eftirlaunum og því vissulega maður sem má stóla á en kannski ekki alveg týpan sem við þurfum akkúrat núna. Dapurlegt samt hversu fasistatíkin sem hann valdi sér við hlið gerði framboð hans sjarmalaust.


En semsagt David Palmer vann alveg eins og við Dennis Haysbert reiknuðum með:

Dennis Haysbert er dyggur stuðningsmaður Obama og efast ekki um að hann hafi með persónu sinni rutt braut Obama og gert hugmyndina um svartan mann í Hvíta húsinu raunverulega í hugum kjósenda. Hann telur að persóna Palmers hafi dregið upp mynd af því hvernig Bandaríkin væru ef svartur maður væri við stjórnvölinn.

„Hvað almenning varðar þá opnaði persónan á þann möguleika í hugum og hjörtum fóks að ef rétti maðurinn kæmi fram... að svartur maður gæti orðið forseti Bandaríkjanna. Fólk gekk að mér á götum úti þegar ég var að kynna þættina og bað mig um að fara í framboð,“ segir Haysbert.


| 16:24 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff