Fimmtudagur, 25. desember 2008
Aðdáendur mínir hafa árum saman beðið eftir því að ég leggi lokahönd á ljóðabók mína Vegamót í myrkri og gefi ósköpin út. Á þessum árum hefur Halldór E vinur minn verið minn helsti listræni ráðunautur og hefur tekið virkan þátt í listsköpun minni, aðallega með því að hjálpa mér að muna hvaða reynslu ég sótti í sollinn hverju sinni. Mér þótti því vel við hæfi að gefa þessum vini mínum Vegamót í myrkri í jólagjöf. Sé að vísu ekki fram á að ljúka nokkru sinni við þessa fyrirfram umdeildu bók en tókst samt að redda eintaki handa mínum góða vini með öflugum tússpenna og einni heimsókn til Braga bóksala.
Hér er svo eitt ljóð úr bókinni
Börn næturinnar
Sú manselda svífur hlekkjalaus út úr myrkrinu.
Hún brosir beintenntu og hvítu brosi. Segist vera frá Rúmeníu.
Að hún sé vampíra.
Allt í einu rennur upp fyrir mér að hún er ekki bráðin.
Spyr hana hvort hún vilji hitta mig eftir lokun?
“Ef þú gefur mér Prada skó, Gucci tösku og kjól frá Dolce Gabana.”