»  off record  »  Byltingarfræði 101
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Byltingarfræði 101
Föstudagur, 12. desember 2008

Fatta ekki alveg feimni og hlédrægni aðgerðarsinnuðu mótmælendanna sem hrella ráðafólk með hressandi uppákomum á Alþingi og víðar. Byltingarhetjurnar óska nafnleyndar og fela andlit sín eins og þær þurfi að skammast sín fyrir aktivítetið.

Ekki er heldur til bóta að nota sama fyrirslátt og valdsmennirnir og bera fyrir sig jafn hallærisleg rök og að þau vilji ekki persónugera mótmælin.

Það er eitthvað bogið við þetta og maður spyr sig hvað hefði orðið um byltinguna á Kúbu ef Fídel og Che hefðu aldrei barist undir nafni.


| 17:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff