»  off record  »  ESB gengur í Framsóknarflokkinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
ESB gengur í Framsóknarflokkinn
Laugardagur, 17. janúar 2009

Skarplega athugað hjá beinskeyttum dómsmálaráðherra vorum að ESB-ályktun framsóknarmanna er innantómt kjaftæði enda hefði þessi moðsuða ekki fengið grænt ljós hjá nánast hverju einasta kvikindi á þessari líkvöku Framsóknarflokksins ef einhver raunveruleg meining hefði verið fólgin í henni.

Í sem stystu og einföldustu máli þýðir þessi samþykkt að Framsóknarflokkurinn sé alveg til í ESB að því gefnu að ESB gangi fyrst í Framsóknarflokkinn.

Fögnuður Evrópusinna yfir þessum máttlausa krampakipp framsóknarmanna kemur mér því jafn spánskt fyrir sjónir og Birni. Ég lendi nú ekki oft í því að vera sammála ráðherranum en í raun er það alveg dæmigert að ég skuli geta fundið snertiflöt við Björn í fimmaurabrandara í boði framsóknar þar sem heimsbyggðin öll getur sameinast um að framsóknarmenn eru hlægilegir.


| 17:04 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff