Föstudagur, 27. febrúar 2009
Hlustaði á RT segja við Arnþrúði á Útvarpi Sögu að þeir sem hefðu kosið Sjálfstæðisflokkinn og haldið honum við völd síðustu tvo áratugi ættu að biðja þjóðina afsökunar.
Hugsaði glottandi með sjálfum mér að þetta væri alveg rétt hjá kallinum og auðvitað ættu þeir bjánar sem hafa kosið íhaldið að skammast sín og biðja okkur hin auðmjúklega fyrirgefningar á að hafa hlaðið undir spillingu sem síðar leiddi til allsherjar hruns með atkvæðum sínum.
Þessi hugsun var varla komin hálfa leið í gegnum hausinn á mér þegar ég áttaði mig á að ég er einn af þeim. Ég hef kosið Sjálfstæðisflokkinn. Að vísu bara einu sinni en það er alveg nóg. Sorrí. Held þetta hafi frekar verið 2003 en 1999. Ártalið skiptir heldur ekki öllu og ekki kom þetta til af góðu.
Verandi sá sem ég er hafði ég verið útlægur ger af heimili mínu en vildi fá lokatækifæri til þess að bæta fyrir misgjörðir mínar og hætta að hýrast í herbergiskytru heima hjá ömmu minni fjarri hlýju hjónasængur. Bauðst því auðmjúkur til að saga af mér annan handlegginn gegn fyrirgefningu syndanna og inngöngu í fyrra líf. Heldur þótti þetta fórnartilboð snautlegt og bera lítinn vott um iðrun. Ég skyldi sko fá að gjalda fyrir alvöru og færa stærri fórn en eitt stykki handlegg.
Refsingin sem ég hlaut var sú versta af öllum vondum. Ég skyldi kjósa Sjálfstæðisflokkinn í yfirvofandi kosningum og ekkert múður. Kvennaráð eru vissulega köld og hún þurfti nú svosem ekkert að leita að snögga blettinum. Vissi upp á hár hvar hann var að finna á kommúnistanum með framsóknarblóðið. Ég sá mér þann kost vænstan að ganga möglunarlaust að afarkostunum en var að sjálfsögðu um leið, að hætti fláráðra vinstri manna, byrjaður að leita leiða til að ganga bak orða minna og kjósa eitthvað allt annað. Ég myndi svo bara eiga það við samvisku mína eftirleiðis að hafa svindlað í friðhelgi kjörklefans.
Einhverra hluta vegna virðist hafa verið reiknað með því að ég myndi reyna eitthvað þessu líkt vegna þess að þegar á hólminn var komið var barn óvænt sent með mér í klefann með það eindalda verkefni að ganga úr skugga um að ég setti X við D.
Ég kaus því Sjálfstæðisflokkinn óhjákvæmilega.
Sorrí
| 17:11 |