»  off record  »  Þið getið troðið þessum Óskari
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þið getið troðið þessum Óskari
Föstudagur, 27. febrúar 2009

Ég hef heyrt illar tungur halda því fram að ég sé með böggum hildar vegna þess að minn maður, Mickey Rourke, hafi ekki fengið Óskarsverðlaunin fyrir magnaðan leik sinn í The Wrestler.

Þetta er rakalaust kjaftæði sem ég vísa hér með alfarið á bug þótt varla þurfi að taka fram við þá sem þekkja mig og Mikka að okkur gæti ekki verið meira sama um þetta ofmetna styttudrasl.

Fyrir það fyrsta er Óskarinn ekki og hefur aldrei verið mælikvarði hvorki á hæfileika né gæði kvikmynda. Læt nægja að sinni að nefna Chicago, Shakespeare in Love og Gwyneth Paltrow í þeirri mynd. Þá ber einnig að hafa í huga að Rourke hefur verið útlagi í Hollywood nánst allan sinn feril ekki síst fyrir þær sakir að hann hefur alla tíð neitað að spila með elítunni og drullað yfir leikara, leikstjóra, framleiðendur og annað stúdíópakk. Óskarsverðlaunin standa því í raun fyrir allt sem Mikki hatar og því vandséð hvers vegna í ósköpunum við ættum að vilja hampa styttunni.

Ég skal hins vegar fúslega viðurkenna að tilnefning Mikka til verðlaunanna lyfti geði mínu umtalsvert bara vegna þess að það er eitthvað óendanlega töff við að maður sem er svo gersamlega heillum horfinn og á sér ekki viðreisnar von skuli fá slíka uppreist æru hjá fólki sem hefur elskað að hata hann og fundið honum flest til foráttu. Árni Johnsen þekkir þessa tilfinningu vel.

Óhjákvæmilega rann á mig sterk sigurvíma eftir því sem sigurganga The Wrestler varð glæsilegri á hinum og þessum verðlaunahátíðum með tilheyrandi lofi gagnrýnenda og spám um frekari landvinninga míns manns. Áður en þessi víma rann af mér var ég farinn að gæla við þann möguleika að Óskarinn yrði okkar samt alltaf með ákveðnum efasemdum.

Ég fattaði svo á sunnudagskvöld rétt fyrir útsendingu when I had what alcoholics refer to as a moment of clairty að hann myndi ekki fá verðlaunin. Gerði mér um leið grein fyrir að við vildum ekkert fá þessi asnalegu snobbverðlaun. Hefði Mikki fengið þau fyrir 20 árum síðan hefði hann þurft að dúndra styttunni í gólfið og segja pakkinu að fokka sér. Og ef hann ætti að vera sjálfum sér samkvæmur hefði hann þurft að gera það líka núna og hann getur ekki verið að standa í svoleiðis rúmlega fimmtugur maðurinn. Nú snýst þetta bara um að hafa vinnu, græða pening og safna nýjum mótorhjólum. Það eitt að þetta hyski sem hann hefur drullað yfir árum saman skuli hafa spælst tilnefningu á hann er stóri sigurinn.

Svo þarf enginn að skammast sín fyrir að tapa fyrir Sean Penn þannig að við erum sáttir.


| 17:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff