»  off record  »  Krókódíllinn og eignarrétturinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Krókódíllinn og eignarrétturinn
Föstudagur, 13. mars 2009

Mannskepnan hefur í gegnum tíðina látið sér detta ýmislegt fáránlegt í hug, sumt beinlínis banvænt, en af þessu er fátt jafn vitlaust og eignarrétturinn. Ósköp kjánalegt konsept sem hefur í gegnum söguna kallað á óendanlegar blóðsúthellingar, efnahagshrun og leiðindi.

Eignarétturinn, eða þessi einkennilega þráhyggja fólks að þurfa að eiga allan andskotan og þá helst voða mikið af peningum, byggingum, fólki og bílum, varð til þess að allir íslensku bankarnir fóru á hliðina og samfélagið á hvolf. Allt út af því að allir, en samt meira bara sumir, þurftu að eignast allan heiminn. Og svo er eignarrétturinn svo merkilegur, upphafinn, heilagur og stjórnarskrárvarinn að það má ekki taka af mönnum það sem þeir hafa stolið eða keypt fyrir ímyndað fé með veði í blóði, svita og tárum almennings.

Krókódílinn hefur lifað á jörðinni miklu lengur en maðurinn og hér hafa áður verið færð sannfærandi rök fyrir því að löng saga hans taki af öll tvímæli um að hann sé klárari en mennirnir og kunni miklu betur að lifa lífinu. Hann hefur á 200 milljónum ára sýnt fram á að eignir eru óþarfar og það eina sem þarf til þess að komast af er sterk brynja og beittar tennur.

Krókódíllinnn á ekki neitt, nema í mesta lagi þriggja vikna rotnandi hræ af veiðibráð sem hann nartar í þegar hann hefur ekkert betra að gera. Fóðrið liggur bara einhvers staðar á kantinum og hann gjóar ef til vill að því augunum af og til á meðan hann flatmagar pollrólegur í feninu, svona bara til þess að vera viss um að það sé þarna. Annars hefur hann engar áhyggjur af þessu og heldur bara áfram að tjilla. Pælir ekkert í hvort hann sé með afsal fyrir bráðinni eða hvort gengi hennar sé rísandi eða fallandi. Honum gæti ekki verið meira sama. Hann ætlar ekkert að eiga þetta bara éta þegar hann verður svangur.

Eignarréttinum fylgir ekkert nema stress, vesen og væntanlega gjaldþrot í restina eins og Íslendingar eru nú að kynnast óþægilega, ýmist verðtryggðir í bak og fyrir eða fastir í myntkörfu.


| 17:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff