»  off record  »  Ódýrustu stelpur í heimi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ódýrustu stelpur í heimi
Mánudagur, 30. mars 2009

Nektardans er hreyfiafl í íslenskri pólitík og hefur komið talsvert við sögu síðustu daga. Ekki er nóg með að erlendar nektardansmeyjar hafi með æfingum sínum fjármagnað að hluta starfsemi íslenskra stjórnmálaflokka heldur vakti sá mikli orataor Davíð Oddsson athygli á miklum áhuga vinstri stjórnarninnar á súluskaki um helgina og notaði strippið til þess að koma á framfæri hárfínni hótun um að hann geti þrætt alls konar lið berstrípað upp á súlur vitneskju sinnar.

Sjálfsagt er óreiðufólkið sem Davíð er með í huga ekki fólk sem maður myndi alla jafna borga fyrir að fækka fötum en þessi fyrirhugaða nektarsýning Davíðs ætti þó að trekkja vel í ljósi aðstæðna.

Kreppan hefur auðvitað komið illa við alvöru nektardansmeyjar eins og aðra og hætt er við að eftirspurnin eftir þjónustu þeirra minnki eitthvað þegar neyðin er farin að kenna nakinni þjóð að spinna. Hafði spurnir af súlumey nýlega sem ber hag Íslendinga fyrir brjósti og finnur ægilega til með landanum út af "the kreppa". Hún telur Íslendinga víst ekki eiga þetta skilið og var mun uppteknari af aðstæðum þjóðarinnar en eigin hremmingum þótt vissulega þætti henni súrt í broti að helvítis krónan væri búin að koma henni í hóp ódýrustu súlumeyja heims.


| 23:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff