Fimmtudagur, 12. mars 2009
Óendurgoldin ást getur verið óskaplega hvetjandi og gefandi. Eitthvað svo spennandi að elska einhvern sem vill mann ekki, veit ekki að maður er til eða hefur bara áunnið ógeð á alkóhólíseruðum blaðamönnum. Vonin um að viðkomandi snúist hugur eða að manni takist með einhverjum trixum að vinna hug hins nánast ósnertanlega viðfangs er rómantík í sinni tærustu mynd.
Vonin sem fylgir vonlausri ást er miklu fallegri og meira gefandi en bömmerinn sem fylgir því að að ná í þá sem maður þráir - vegna þess þá er auðvitað ekkert eftir nema bíða eftir að ástareldurinn deyji út og verði að ösku.
Öllu verra er að falla fyrir manneskju sem er ekki til vegna þess að þá er þessi litli vonarneisti ekki til staðar. Eiginlega er bara alveg glatað að falla jafn harkalega fyrir skáldsagnapersónu og ég hef gert fyrir Lisbeth Salander í Millenium þríleik Stieg Larssons.
Salander hefur eiginlega allt sem góða konu þarf að prýða. Hún er dökkhærð, snargeðveik, með dreka tattú á öxlinni, ógeðslega klár, sjúklega rík, ofbeldihneigð, snertifælin en samt gröð og svo mætti lengi telja. Hún var að vísu alveg flatbrjósta í Karlar sem hata konur sem var nú eiginlega bara eini gallinn sem ég gat fundið á henni. Larsson hefur hins vegar alveg verið búinn að ákveða það frá upphafi að skrifa hana sem kvenmynd eilífðarinnar vegna þess að strax í byrjun næstu bókar er hún búin að fá sér þessi líka fínu sílíkonbrjóst.
Ég var að brenna upp af söknuði eftir að ég kláraði Karlar sem hata konur en daginn áður en ég gekk af göflunum fann ég Flickan Som Lekte Med Elden á ensku í Eymundsson. Bókin gefur fyrstu bókinni lítið eftir en samt treini ég mér hana og les bara nokkrar síður á kvöldi. Get ekki hugsað þá hugsun til enda þegar síðasta síðan er lesin og ég get ekki skriðið upp í með Salander fyrr en í júní þegar enska þýðingin á síðustu bókinni kemur út.
Og þegar sú bók hefur verið lesin upp til agna lýkur þessu intensíva ástarsambandi þar sem helvítið hann Larsson er dauður og bækurnar um þessa flottustu krimma kvennpersónu ever verða ekki fleiri. Pæling kannski að sleppa því að kaupa þá bók og halda þessu þannig lifandi. Samt er þetta eitthvað svo glatað vegna þess að Salander veit ekki að ég er til vegna þess að hún er ekki til.
| 17:22 |