»  off record  »  Á lyfjum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Á lyfjum
Laugardagur, 04. apríl 2009

Læknirinn setti mig á sýklalyf í gær. Á fylgiseðlinum segir að töflurnar eigi að taka inn sitjandi eða standandi. Nú á ég alveg ofboðslega erfitt með að fara eftir fyrirmælum og leiðbeiningum en ætla samt að láta það ógert að reyna að gleypa þetta liggjandi.

Annars hef ég aldrei fattað alveg með þessi lyf sem eiga að létta manni lífið að yfirleitt fylgja þeim aukaverkanir sem eru verri en meinið sem þau eiga að laga. Samanber til dæmis þetta. Pillurnar sem ég tek standandi þessa dagana eiga að drepa niður einhvern þrálátan flesnuskít en í staðinn má ég, samkvæmt fylgiseðli, eiga von á ógleði og niðurgangi, sveppasýkingu á tungu, í munni og endaþarmi auk sviða og útbrota á svæðum sem sólarljós nær til.

Er ekki bara ráð að gefa fólki morfín við öllum kvillum?


| 23:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff