»  off record  »  Ljóðrænt réttlæti
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ljóðrænt réttlæti
Laugardagur, 04. apríl 2009

Í einhverjum páskaeggjum eru miðar sem á stendur að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Mér hefur alltaf þótt þessi málsháttur frekar asnalegur enda er ein báran sjaldan stök og þegar maður er á annað borð í djúpum skít þá heldur maður bara áfram að sökkva eins og sjálfstæðismenn eru nú loksins að fá að kynnast fyrir alvöru.

Fyrir okkur hin má þó segja að meira að segja efnahagshrunið sé ekki svo illt að ekki boði nokkuð gott en eina virkilega jákvæða afleiðing hrunsins er sú að karmalögmálið hrökk allt í einu i gang á Íslandi og sök bítur nú seka sem aldrei fyrr. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn en öllu betri fyrir þá sem eru orðnir langþreyttir á biðinni eftir því að réttlætið, sem hefur átt frekar undir högg að sækja í spillingabælinu Íslandi, nái fram að ganga.

Fréttir síðustu daga af fjárstyrkjum Sjálfstæðisflokksins eru svo fallegar að maður stendur hálf klökkur frammi fyrir þeim enda er þetta eins og að fá loksins að höndla hin endanlega sannleika. Eða öllu hedur fá hann staðfestan þar sem auðviað vita allir í hjarta sér, líka þeir sem kjósa flokkinn, að Sjálfstæðisflokkurinn er prímus mótor hinnar ósýnilegu íslensku spillingar sem mældist ekki á alþjóðlegum kvörðum fyrir hrun.

Skynsemismenguð svartsýni mín er það eina sem kemur í veg fyrir að ég dansi nakinn um stræti og torg af fögnuði í dag vegna þess að ég veit að íslenskir kjósendur eru bæði heimskir og gleymnir. Reynslan sýnir að það mun taka fólk um það bil viku að gleyma 55 milljóna skandalnum og þar sem við kjósum eftir rétt rúmar tvær vikur þá sleppur þetta lið inn með allt of marga þingmenn.


| 23:30 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff