»  off record  »  Neyðarlínukallinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Neyðarlínukallinn
Laugardagur, 11. apríl 2009

Nýja Star Trek myndin er fáránlega góð. Hlýtur að vera það vegna þess að ég hef að mestu sniðgengið Star Trek í gegnum tíðina og nýtt hvert tækifæri til að dissa Trekkara en samt hef ég ekki skemmt mér jafn vel í bíó lengi. Þessi mynd er magnað re-invetnion á pari við Batman Begins.

Dýpt sögunnar ræðst þó auðvitað fyrst og fremst af stærð William Shatner í menningarsögulegu samhengi og einhvern veginn er maður alltaf með það í huganum á meðan maður fylgist með James T. Kirk frá því hann kemur úr móðurkviði í miðjum geimbardaga að þessi litli sveinn eigi eftir að vaxa úr grasi og verða Denny Crane.

Ég minnist þess ekki að sögupersóna hafi verið kynnt til leiks með jafn miklum stæl og í þessari nýju Star Trek mynd þegar pjakkurinn Kirk púllar magnað Thelmu&Louise á eldgamalli Corvettu. Þarna er tóninn gefinn og síðan skýst þessi ungi svein hrattt upp metorðastigann í geimflotanum í krafti hrokafullrar sjálfumgleðinnar sem gerir Denny Crane að Denny Crane.

Leonard Nimoy, gamli Spock, fær að vera með í þessari nýju mynd en gamli Kirk er hvergi sjáanlegur enda hefði myndin ekki þolað nærveru Shatners. Einfaldlega vegna þess að hann er of stór. Larger than life og Star Trek hefði einhvern veginn ekki þolað það ef Denny Crane hefði allt í einu dúkkað upp á U.S.S. Enterprise í einhverju time warpi.

Mér fannst þessi kenning mín um stærð Shatners ríghalda þar til ég viðraði hana á ritstjórninni og var spurður hvort ég væri ekki að tala um þennan sama William Shatner og var í Rescue 911.


| 0:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff