»  off record  »  Réttdræpir unglingar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Réttdræpir unglingar
Þriðjudagur, 07. apríl 2009

Ætli flestir hafi ekki lent í því að minnsta kosti einu sinni að vilja berja ungling í hel bara svona vegna þess að tegundin er með öllu óþolandi. Hrunið mikla má meira að segja óbeint rekja til unglinga en það hófst í raun ekki með geðsjúku flippi útrásarvíkinganna heldur þegar unglingar hættu að girða sig.

Og þegar við erum farin að rekja þetta svona aftur á bak má auðvitað kenna helvítis hippunum og þessu 68-kynslóðar pakki, sem heldur enn að það hafi verið ægilega sniðugt, um þetta allt en það eina sem stendur eftir af byltingu þeirra eru unglingar með hálft rassgatið upp úr brókunum og fullorðnar konur í jogging göllum. Það liggur auðvitað í augum uppi að fólk sem kann ekki að klæða sig elur upp börn sem bera ekki virðingu fyrir neinu, setja heilt þjóðfélag á hausinn þegar þau vaxa úr grasi til þess eins að fjármagna fokdýran plebbalífstíl og geta í leiðinni af sér þriðju kynslóð landeyða og vesalinga.

En hvað um það. Þessi færsla átti nú bara að vekja athygli á einni bestu hryllingsmynd síðustu ára sem einhverra hluta vegna rataði ekki í bíó og viltist beint á vídjóleigurnar. Eden Lake er bresk, eins og ein besta hryllingsmynd ever The Wicker Man.

Eden Lake er samt eiginlega tryllir frekar en hryllir þótt hún uppfylli öll helstu skilyrði hryllingsmynda. Tryllingsmyndir geta verið án skrímsla en hryllignsmyndir geta það ekki og í Eden Lake erum við sko með alvöru skrímsli - nefnilega hóp af illa innrættum og ógeðslegum unglingum. Það segir svo allt sem segja þarf um slagkraftinn í myndinni að ég, fjögurra barna faðrinn, fagnaði ákaflega þegar hrakinn sögupersónan fann loksins Rambó-inn innra með sér og byrjaði að drepa þessi viðurstyggilegu kvikindi.

Þar fyrir utan er þetta bara frábærlega fléttuð og einföld mynd um ofboðslega ljúfan leikskólakennara sem fer í frí á afvikna strönd með vöðvastælta og sæta kærastanum sínum. Þau eru yfir sig ástfangin og hann ætlar að nota tækifærið til að biðja hennar. Rómantíkin fær þó ekki að svífa lengi yfir Eden Lake þar sem skítbuxarnir skjóta upp kollinum á BMX-hjólunum sínum með froðufellandi hundskvikindi í taumi og leggja parið í einelti. Þetta stigmagnast svo samkvæmt kúnstarinnar reglum þangað til blóði er úthelt, morð eru framin og ekki verður aftur snúið.

Í öllum hryllingsmyndum (fara bankar á hausinn) hrynur reglulegt líf saman og (fólk lemur potta og pönnur) upplausn og óregla taka við. Regla kemst svo ekki aftur á fyrr en búið er að (setja auðmennina í fangelsi og Sjálfstæðisflokkinn í pólitíska útlegð) reka stiku í gegnum vampíruna, skjóta varúlfinn með silfurkúlu eða drepa morðingjann með búrhnífinn í það minnsta þrisvar sinnum. Eden Lake er samt jarðbundnari hrollur (þetta gæti gerst) en Halloween og íslenska efnahagshrunið en samt er enn erfiðara fyrir leikskólakennarann að koma aftur á röð og reglu vegna þess að það þýðir ekkert að hlaupa og klaga í fullorðna fólkið eða Evu Joly. Pakk getur nefnilega af sér pakk eins og 68-kynslóðin sýndi og sannaði með eftirminnilegum og átakanlegum hætti þannig að fóstran fagra er í vonlausri stöðu.

En hrakin stúlka í flegnum kjól er einmitt ómissandi í hryllingsmyndum og þessi er alveg frábær og svokallað must see fyrir þá sem fíla gott bíó og æla yfir myndum um feitar verslunarmiðstöðvalöggur og aðra álíka ömurð úr Hollywoodinu.


| 23:33 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff