Sunnudagur, 26. apríl 2009
Ég var búinn að gleyma því hversu stórkostlegt meðal áfengi er þangað til ég kom á kosningavöku sjálfstæðismanna í Valhöll í nótt.
Áfengið hefur þennan geggjaða eiginleika að geta breytt staðreyndum, fegrað raunveruleikann og látið manni líða vel þegar í raun ekkert er til ráða annað en að setja snöruna um hálsinn og sparka stólnum undan sér.
Sjálfstæðisfólkið var bara í þessu líka fína stuði, rauðvíns-, hvítvíns- og bjórlegið, undir ömurlegustu kosningatölum sem sést hafa í sögu flokksins. Held svei mér þá að þetta hafi verið besta partíð. Hressar gellur í hólf og gólf, Geir Ólafs og ýmsir varíantar af misömurlegum verzlótýpum. Svo bara allir að djúsa og úti að reykja að tala um hvað Bjarni Ben er mikið æði.
Óvísindaleg rannsókn mín á kosningavökunum bendir til þess að fjöldi leiðinlegs fólks sé mestur í Samfylkingunni þannig að í raun er mjög eðlilegt að hún sé stærst á landsvísu. Framsóknarflokkurinn er að vísu óþekkt stærð í þessum efnum þar sem enginn sem ég talaði við á kosningavöku XB á Borginni vildi gangast við því að vera framsóknarmaður.
Sjálfstæðismenn mega svo eiga það að þeir hegðuðu sér einir í samræmi við efnahagsástandið og héldu sína kosningavöku heima hjá sér í Valhöll á meðan aðrir flokkar lögðu undir sig ýmist hótel eða skemmtistaði. Sjálfstæðismenn hefðu undir eðlilegum kringumstæðum leigt Broadway eða eitthvað álíka undir sig en það er svolítið 2006 þannig að flokkur Bjarna Ben er þegar farinn að sýna þroskamerki. Svo má auðvitað ekki gleyma því að það er ekki að því hlaupið að bruðla með peninga þegar Ástþór Magnússon hefur vökul augu með bankareikningi þínum og bíður eftir að heilar 55 milljónir hreyfist.
| 0:29 |