»  off record  »  Skapaði Guð sýkla?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Skapaði Guð sýkla?
Föstudagur, 10. apríl 2009

Hann Jesús og pabbi hans Guð hafa nú alveg átt betri daga en þennan föstudag sem er tvímælalaust einn sá dramatískasti í lygasögunni frá Arabíu. Finnst þess vegna vel við hæfi að dusta rykið af nokkrum gullmolum sem sá mikli pælari og mótmælandi mesti og besti, Helgi Hóseasson, lét falla í Fréttablaðsviðtali sem ég tók við hann fyrir einhverjum árum.

Krosslafur og himnadraugurinn komu auðvitað mikið við sögu sem og fermingin en eins og allir vita hefur Helgi barist fyrir því áratugum saman að fá skírnarsáttmála sínum rift. Eiginlega ætti að innifela sögu Helga í fermingarfræðsluna svo þau börn sem eru leidd til andlegrar slátrunnar þessa dagana viti upp á hvaða ósköp þau eru að kvitta. Helgi sagðist halda að hann hafi verið um tvítugt þegar hann fór að fetta fingur "út í þessar arabasögur þarna að austan."

Hann hefur allar götur síðan staðið í stappi og þá ekki síst við embættismannakerfið. "Þeir voru nú að reyna að fá mig til að leggja niður skottið en ég hafði ekki áhuga fyrir því. Mér fannst þetta vera svívirðing gagnvart mér sem hugsandi skepnu að hafa það eftir mér að ég viðurkenndi mörg þúsund ára gamlar lygasögur austan úr Arabíu. Ég ber ekki meiri virðingu, en svo, fyrir þessum sögusögnum þarna austan að. Það er kyndugt með þetta helvítis himnaríki. Menn benda upp í geiminn en geta ekki staðsett hvar þessi himnafjölskylda á heima; Gabríel, Mikael, María gamla og Krosslafur og Satan því hann er nú einn af fjölskyldunni."

Og svo barst talið að varnarlausum börnunum. "Það er alveg furðulegt að menn sem halda að þeir séu með fullu ráði og rænu skuli vera að ljúga þessum bölvuðu lygasögum í börn. Það er íhugunarvert og mér finnst það vera kynjalegt hvað lítið er gert að því að hamla móti þessum vitleysingsgangi með þessa svokölluðu Kristni. Ég hef verið steinhissa á því lengi að það skuli ekki vera stofnaður formlegur félagsskapur eða samtök gegn svona glæpaverki að vera að teygja börn út í þennan andskota og kalla þetta heilagan sannleik hérna norður við pól. Það vita allir menn sem ekki hafa eintómt hey í hausnum að það er enginn guð til. Enda væri hann argasti óþokki sem sögur fara ef hann væri til. Ég hef orðið vitni að því að hann reyndi ekki að hindra þær tvær heimsstyrjaldir sem ég hef lifað. Þetta bölvaða líf er eintóm helvítis vitfirring."

Og svo kemur lykilspurningin sem ágætt er að nota þennan langa föstudag til að velta aðeins fyrir sér:

"Hver skapaði sýkla? Ég hef engan fundið enn þá sem getur svarað því. Þess vegna er ég nú að spyrja. Það er sagt á mörgum stöðum og í mörgum bókum að himnadraugurinn hafi skapað allt. Skapaði góður guð sýkla sem drepa milljónir manna á hverju ári?"


Alda Lóa Leifsdóttir tók myndina af okkur á tröppunum heima hjá Helga.


| 23:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff