Fimmtudagur, 02. apríl 2009
Eftir að eitt grátt hár fannst í hausnum á mér hef ég reynt að yngja mig aðeins upp með því að spóka mig um í vinnunni með iPod Shuffle hangandi utan á mér.
Þessi græja þykir víst frekar móðins og heitar gellur eru víst mikið með svona í eyrunum á hlaupabrettunum í Laugum og hlusta á það nýjasta nýtt úr smiðju Rihönnu.
iPodinn minn nær örugglega að yngja mig aðeins upp þótt hann innihaldi ekki Rihönnu en sá sem er með þennan play-lista hlýtur að rokka feitt.
Like the Way I Do - Melissa Etheridge
Love of the common people – Paul Young
Pride – U2
Bring Me Some Water - Melissa Etheridge
Mighty Wings - Cheap Trick
Come back and stay – Paul Young
Dirty Diana – Michael Jackson
Don't You (Forget About Me) – Simple Minds
Eye of the Tiger – Survivor
svo eru þarna líka tvær hljóðbækur frá Audible. The Black Book eftir Ian Rankin og The Burglar Who Thought He Was Bogart eftir Lawrence Block.
| 0:27 |