»  off record  »  Unglingaveiki íslenskra stjórnmálamanna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Unglingaveiki íslenskra stjórnmálamanna
Laugardagur, 25. apríl 2009

Tíu ára sonur minn bađ mig áđan um ađ kjósa Vinstri grćna. Fullkomlega eđlileg bón frá ungum manni međ gott hjartalag sem lćtur sig hag ţeirra sem minna mega sín, og ţá sérstaklega málleysingja, miklu varđa.

Ástćđan var ţó ekki áherslur VG á náttúruvernd og öll ţau mjúku og mannlegu gildi sem uppfćrđa útgáfan af íslenskum kommúnistum hefur gert af sínum. Sonur minn vill ađ ég kjósi VG út af ömurlegri nazískri ţjóđernishyggju flokksins og sturlađri og blindri ást leiđtogans og fjármálaráđherrans og ónýtum gjaldmiđli.

Syni mínum finnst krónan nefnilega svo "falleg" og ég á ađ kjósa VG vegna ţess ađ ţeir vilja halda henni. Skotheld rök um ađ öll verslun okkar feđga á Amazon yrđi mun ánćgjulegri og ţćgilegri međ evru duga ekki ţegar drengurinn pakkar í fagurfrćđilega vörn međ innblásnum og
orđljótum fyrirlestri um hversu ósmekkleg evran sé.

Skil ekki alveg ţessi börn mín en ég hef fyrir löngu gefist upp á ađ tala uppreisnarunglinginn minn inn á inngöngu í ESB. Ţegar kemur ađ evrum, krónum og ESB deilir hún skođunum međ heimastjórnarmönnum og hafnar evrunni á forsendum ćttjarđarfrasa sem eiga best viđ Davíđ Oddsson og Hannes Hafstein. Lögreglunni tókst ekki einu sinni ađ fćla unglinginn frá heimastjórnarfirrunni međ ţví ađ beita hana piparúđa. Krónan skal blíva hjá börnunum mínum sem eru til í ađ erfa gjaldţrota land á haldlitlum en tilfinningahlöđnum forsendum.

Ţessar hremmingar mínar og augljósu mistök í uppeldi kristalla auđvitađ evrópuumrćđuna í samfélaginu. Rómantískir unglingar og reynslulítil börn sprikkla gegna Evrópusambandinu á međan lífsreynt fólk međ framtíđarsýn og ábyrgđartilfinningu foreldra sem vilja tryggja framtíđ barna sinna sjá enga ađra leiđ fćra en ganga til viđrćđna og veita krónunni langţráđan líknardauđa.

Ég var samt löngu búinn ađ ákveđa ađ ráđstafa atkvćđi mínu í samrćmi viđ óskir sonar míns ŢRÁTT fyrir heimsku (í upphaflegri merkingu) flokksins í gjaldmiđilsmálinu. Ég kýs ţennan flokk ţví međ nett tađkögglabragđ í munni en eftir ađ hafa beitt útilokunarađferđinni stendur eftir ađ VG er eini flokkurinn sem ţó verđskuldar atkvćđi. Samfylkingin er búinn ađ syngja evrópusönginn lengi en ég treysti henni ekki til ţess ađ klára ţetta mál frekar en önnur. Sannfćring íslenskra krata er ekki einnar ónýtrar krónu virđi.

Evran á líka hvort eđ er eftir ađ koma af sjálfu sér í lífrćnu ferli sem grjótheimskir íslenskir stjórnmálamenn fá ekkert viđ ráđiđ ţannig ađ ég lćt eftir mér ađ kjósa eins og ég hefđi gert fyrir 20 árum ţegar ég trúđi ţví enn ađ vinstri menn gćtu bćtt heiminn og vildu virkilega gera ţađ.


| 0:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff