Fimmtudagur, 28. maí 2009
Átti erindi á Grand Rokk í dag. Hafði ekki komið þar inn fyrir dyr í rúmt ár en átti það til að sitja þar löngum stundum sem ég stytti með ómældu magni af áfengi og röfli við notalegar, kurteisar og bókhneigðar fyllibyttur.
Var eins og ég hefði aldrei farið. Sama fólkið í sömu stellingunum í sömu sporunum eða sömu stólunum að tala um eitthvað í svipuðum dúr og áður. Eiginlega var bjórinn í glösunum það eina sem var nýtt þarna.
Ósköp fallegt og kósý og mér leið vel þarna. Kannski aðallega yfir því hversu rosalega feginn ég er yfir því að hafa eytt síðasta ári í eitthvað annað en liggja marineraður í formalíni. Runninn út af þróunarbrautinni og spólandi í sömu andlegu förunum.
Oh god, and so it goes on, day after day, year in year out, slime in this ear, slime in that ear, don't you ever yearn for change?
| 0:57 |