»  off record  »  Seldi grunuđum morđingja Sómasamloku
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Seldi grunuđum morđingja Sómasamloku
Sunnudagur, 14. júní 2009

Heldur brá mér í brún ţegar ég las frétt á Vísi í gćr um ađ Donald Feeney vćri grunađur um morđ í Írak. Ég get alveg trúađ ýmsu upp á ţennan fyrrverandi sérsveitarmann, sem rekur fyrirtćki sem vill svo skemmtilega til ađ heitir CTU, en hann er ekki morđingi eins og Jack Bauer sem vann líka fyrir CTU.

Ég hitti Feeney fyrir ferlega mörgum árum eftir ađ hann hafđi veriđ handtekinn á Íslandi fyrir ađ reyna ađ rćna börnum íslenskrar móđur sem hafđi púllađ Halim Al og stungiđ af frá Bandaríkjunum til Íslands međ dćtur sínar. Bandarískir feđurnir leituđu ţá til Feeney og CTU sem sérhćfđu sig í ađ endurheimta börn sem voru föst í ólýđrćđislegum gerrćđisríkjum.

Sérsveitarmađurinn átti ţó ekkert í íslensku sveitalögguna sem nappađi hann. Feeney var í framhaldinu dćmdur í fangelsi en ţađ var einmitt eftir ţađ sem leiđir okkar lágu saman. Ţegar löggann var ađ flytja hann til afplánunar á Litla-Hraun í einni af sínum ómerktu Toyotum var komiđ viđ á bensínstöđinni hjá mér til ađ fylla á bílinn ţar sem embćttiđ var međ reikning hjá okkur.

Farţeganum var gefiđ smá frelsi, á planinu í Fellsmúlanum, sem hann notađi til ađ koma inn til mín og kaupa sér Sómasamloku og hálfan lítra af Kóki í plasti. Ţetta var nú nestiđ sem rómađur málaliđinn hafđi međ sér á Hrauniđ. Ţađ var ekki laust viđ ađ mađur kenndi dálítíđ í brjósti um hann enda var hann ósköp vćskilslegur, hálfsköllóttur međ skegglufsurnar sínar, hnípinn og kurteisari en flestir frjálsu Íslendingarnir sem mađur ţurfti ađ eiga viđ dagana langa.

Og af öllum ţeim fíflum, hrokaídjótum, sikkópötum, dópistum, nöldurkerlingum, bissnis- og stjórnmálamönnum sem ég hef afgreitt á bensínstöđ í gegnum tíđina held ég ađ mér ţyki Donald Feeney einna ólíklegastur til ađ fremja morđ. Mér brá ţví lítiđ seinna um daginn ţegar vinir mínir á Vísi birtu ađra frétt um ađ Feeney hefđi veriđ hreinsađur af öllum ásökunum um ađild ađ morđinu. Ţetta gat bara ekki veriđ. Mađurinn keypti sér Sómasamloku og Kók.


| 0:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff