»  off record  »  Rassgatið á íslensku þjóðinni
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Rassgatið á íslensku þjóðinni
Þriðjudagur, 21. júlí 2009

Þrátt fyrir að mér líði hvergi betur en á malbiki umkringdum steinsteypukumböldum á kafi í svifryki og bensíngufum má ekki gleyma því að rómantísku skáldin voru á árum áður leiðtogar lífs míns þannig að af og til hverf ég aftur til náttúrunnar.

Verð alltaf svo frjór og djúpt þenkjandi þegar ég renn saman við sköpunarverkið með dýrum merkurinnar og þannig datt ég í heimspekina á heimleiðinni þegar ég horfði á flugur enda tilveru sína í lange baner á framrúðunni.

Rifjaðist þá upp fyrir mér svakalega vond bíómynd sem ég sá í Laugarásbíói fyrir nokkrum mannsöldrum með stelpu sem ég var þá ofsalega skotinn í. Við fórum svona um það bil þrisvar í viku í bíó á því tímabili þegar Laugarásbíó setti sérstakan metnað í að sýna lélegar bíómyndir. Grandmother´s House kemur strax upp í hugann en myndin sem ég mundi eftir þegar ég horfði á kamakaze-flugurnar var hins vegar Cohen and Tate.

Drasl með Roy Scheider og Adam Baldwin sem leika leigumorðingja sem þurfa að drepa krakkaskratta nokkurn. Hápunktur myndarinnar er þegar Tate (Baldwin) segir brandara í bílnum sem Cohen (Scheider), sem fílar Tate ekkert sérstaklega, getur ekki stillt sig um að hlæja að:

Hey what's the last thing that goes through a bug's mind when it hits a windshield? IT'S ASS
hahahahahahahahahahahahaha hahahahahahaha rosa fyndið eða þannig.

En semsagt það síðasta sem fór í gegnum huga flugnanna á framrúðunni minni um helgina var rassgatið á þeim. Svona soldið eins og íslenska þjóðin þegar hún skall á framrúðu raunveruleikans í október með teinótt rassgötin á auðmönnum í gegnum heilabreinið.


| 0:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff