»  off record  »  september 2009
off record
september 2009

a long time ago...
Leikhús leiðans
Miðvikudagur, 30. september 2009

Fólk í kringum mig er voða mikið að velta sér upp úr því að Tinna Gunnlaugsdóttir fái að stjórna Þjóðleikhúsinu í nokkur ár í viðbót. Ég hefði nú bara svona upp á húmorinn viljað fá Pál Baldvin í djobbið en er annars slétt sama hver stjórnar þarna við Hverfisgötunna vegna þess að mér leiðast leikhús.

Mér leiddist í leikhúsi áður en Tinna tók við og líka eftir að hún varð þjóðleikhússtjóri með þeim afleiðingum að fyrir liggur þykk og þung stjórnsýsluúttekt á störfum hennar sem er svo löng að hún er jafnvel leiðinlegri en Kirsuberjagarðurinn eftir Tjékkoff.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um að Hamlet með Mel Gibson hlýtur alltaf að vera skemmtilegri en Hamlet með Hilmi Snæ og þess vegna fer ég frekar í bíó en leikhús. Bíó er oftar skemmtilegt en leiðinlegt en leikhús er oftar leiðinlegt en skemmtilegt. Yfirleitt bara boooooring. Samt klæðir fólk sig upp í spariföt þegar það fer í leikhús og hefur áhyggjur af því hver sé leikhússtjóri.

Bíóið er miklu einfaldara, betra og skemmtilegra. Þangað fer ég klæddur eins og bensínafgreiðslumaður á frívakt og pæli aldrei í því hver sé bíóstjórinn í Álfabakka, Smáralind eða Háskólabíói.

Málið er einfaldlega bara to be or not to be... boring? Og þá treystir maður frekar á filmuna en fjalirnar.


Mikill vitringur fallinn frá
Sunnudagur, 06. september 2009

Í samfélagi fábjána munar um hvern viti borinn mann sem fellur frá þannig að það er skarð fyrir skildi nú þegar sá mikli meistari Helgi Hóseasson er allur.

Ég hef hvorki fyrr né síðar tekið viðtal við skemmtilegri mann en Helga en hann var alveg leiftrandi skemmtilegur, kvikur og tær í sinni gagnrýnu hugsun þegar ég heimsótti hann í september 2003. Við vorum líka eiginlega sammála um allt fyrir utan það að ég fór undan í flæmingi þegar Helgi fordæmdi þá sem brúka tóbak og brennivín.

Helgi var mikill höfðingi heim að sækja og hann gaf mér eintak af álitsgerð á geðheilbrigði sínu sem hann stal af sínum tíma frá Kleppi, fjölritaði og seldi á tíkall niðri í bæ. Ákaflega töff. Þessa álitsgerð geymi ég með öðrum dýrgripum eins og póstkortinu hér fyrir ofan. Helgi sendi afa og öðrum alþingismönnum svona kort árið 1976. Þarna varaði Helgi þingmenn við því að hann ætli að sletta málningu á hýbýli þeirra og af stakri sjéntílmennsku leyfir hann þeim að velja litinn sjálfir. Svari þeir ekki innan 5 daga muni hann hins vegar líta svo á að þeir kjósi tjöru.
Kortið var ekki í umslagi og pósturinn hringdi víst í þingmannagengið og varaði þá við þessari köldu kveðju sem til stæði að bera þeim. Amma segir mér að einhverjir kallanna hafi orðið hálf smeykir og hafi hringst á út af málinu. Þá minnir hana endilega að Gylfi Þ. Gíslason hafi fengið tjöru á bílinn sinn, rétt eins og stjórnarráðið.

Hrópandinn í eyðimörkinni
Birt í Fréttablaðinu í september 2003

Helgi Hóseasson er flestum kunnur fyrir áratuga langa baráttu sína fyrir því að fá skírnarsáttmála sinn ógildan en frægasta senan í þeirri baráttu er það uppátæki Helga að sletta skyri yfir þingheim við setningu Alþingis árið 1972.

"Þeir neituðu því hver um annan þveran, biskopurinn og þeir sem ég vildi fá til að ónýta skírnarsáttmálann sem ég var látinn gera við himnadrauginn. Ég varð því að gera það sjálfur þó mér fyndist nú þessir fulltrúar afturgöngunnar ættu að gera það."

Helgi segist engu geta hafa ráðið um skírn sína og hafi svo verið vélaður til þess þegar hann var enn á barnsaldri til að staðfesta gjörninginn með fermingunni. En hvenær gerði hann sér ljóst að hann ætti enga samleið með guði?

Lygasaga frá Arabíu

"Ætli ég hafi ekki verið um tvítugt þegar ég fór að fetta fingur út í þessar arabasögur þarna að austan", segir Helgi og segist aldrei hafa látið það hvarfla að sér að gefast upp fyrir ofurefli embættismannakerfisins.
"Þeir voru nú að reyna að fá mig til að leggja niður skottið en ég hafði ekki áhuga fyrir því. Mér fannst þetta vera svívirðing gagnvart mér sem hugsandi skepnu að hafa það eftir mér að ég viðurkenndi mörg þúsund ára gamlar lygasögur austan úr Arabíu. Ég ber ekki meiri virðingu, en svo, fyrir þessum sögusögnum þarna austan að. Það er kyndugt með þetta helvítis himnaríki. Menn benda upp í geiminn en geta ekki staðsett hvar þessi himnafjölskylda á heima; Gabríel, Mikael, María gamla og Krosslafur og Satan því hann er nú einn af fjölskyldunni.

Það er alveg furðulegt að menn sem halda að þeir séu með fullu ráði og rænu skuli vera að ljúga þessum bölvuðu lygasögum í börn. Það er íhugunarvert og mér finnst það vera kynjalegt hvað lítið er gert að því að hamla móti þessum vitleysingsgangi með þessa svokölluðu Kristni. Ég hef verið steinhissa á því lengi að það skuli ekki vera stofnaður formlegur félagsskapur eða samtök gegn svona glæpaverki að vera að teygja börn út í þennan andskota og kalla þetta heilagan sannleik hérna norður við pól. Það vita allir menn sem ekki hafa eintómt hey í hausnum að það er enginn guð til. Enda væri hann argasti óþokki sem sögur fara ef hann væri til. Ég hef orðið vitni að því að hann reyndi ekki að hindra þær tvær heimsstyrjaldir sem ég hef lifað. Þetta bölvaða líf er eintóm helvítis vitfirring."

Skyrinu slett

Helgi var orðinn langþreyttur á áhugaleysi yfirvalda á að leysa úr máli hans þegar hann sletti skyrinu. "Af hverju skyr? Ég varð að láta eitthvað koma á móti því að þingsetarnir og ríkisstjórnin og fleiri ráðamenn eins og biskoppur sinntu ekki bréfi mínu. Ég skrifaði þeim öllum bréf og þeir önsuðu mér bara tveir; Bjarni Ben. og Lúðvík Jósepsson. Hinir svöruðu mér ekki og til minningar um það þá réðist ég í það að sæma þá skyrinu. Ég hef ekki verið kærður fyrir það enn þann dag í dag."

Helgi var handtekinn með látum eftir að hafa nánast tæmt skyrfötuna yfir biskup, forseta, ráðherra og þingmenn og segir að hann hafi ekki verið tekinn neinum vetlingatökum. "Þeir lágu þarna fjórir ofan á mér niður í skyrslettunum og drösluðu mér svo burt, járnuðum á höndum og fótum.
Ég skvetti líka tjöru á stjórnaráðshúsið á sínum tíma og hef ekki heldur verið kærður fyrir það. Þetta er kynjalegt þetta réttarfar í þessu helvítis landi. Menn eru nú kærðir fyrir minni læti en þetta."

Pereat í Iðnskólanum á Akureyri

Þrautsegja Helga og úthald í mótmælum hefur að vonum vakið athygli í gegnum tíðina en hann lætur enn þann dag sjá sig á götum úti með mótmælaskilti. En hefur hann alltaf verið uppreisnarmaður?
"Ég veit ekki hvað má kalla uppreisnir. Ég var nú í Iðnskólanum á Akureyri á sínum tíma og þar var til málamynda bindindisfélag og ég hafði orð á því á einum fundi að ég kynni illa við það að kennararnir gengju með vindlinga í kjaftinum hvar sem væri í skólanum þar sem að væri tekið fram í skólareglugerð að reykingar væru einungis leyfðar í ytri forstofu. Þá sagði nú skólastjórinn, sem var á fundinum, að það væri nú ekki að ástæðulausu sem kennararnir gerðu þetta því þeir hefðu bara engan tíma til þess að sinna þessum bindindismálum.

Mér þótti það kynjalegt tímaleysi að það skyldi koma þannig út að þeir þyrftu að ganga reykjandi um allan skólann. Nú svo líkaði skólastjórnaum þetta ekki hjá mér að vera að atyrða kennarana gagnvart reykingunum og boðaði mig inn á skrifstofu sína eftir þrjá daga og sagði mér að hann hefði nú verið að bíða eftir því að ég bæðist afsökunar á þessari ræðu sem ég hafði flutt á bindindisfélagsfundinum. Ég sagðist vera alveg í standi til þess að biðjast afsökunar ef hann gæti sýnt mér fram á að ég hefði eitthvað brotið af mér.

Hann sagði að ég ætti engan rétt á að heimta það og sagði að það væri tvennt í þessu; annaðhvort bæðist ég afsökunar eða mér yrði vikið úr skólanum og það fór svo að ég var rekinn. Það má kalla þetta uppreisn."

Viljalaust fólk með hey í hausnum

Helgi hefur séð ófáar ríkisstjórnir koma og fara og segir þær allar hafa verið svipaðar. "Það hefur alltaf loðað það sama við hvað sem þessir ríkisstjórnarkalrar hafa heitað. Þeir sem ráða í dag eru ekkert verri en aðrir hvað snertir tóbak og áfengi en þeir eru kannski öllu meiri stríðsmenn. Þeir hafa verið handgengir Bandóðríkja ríkisstjórninni eins og sýnir sig með þessum samningi um að hjálpa þeim til þess að drepa Írakana og stela frá þeim olíunni. Það fer lítið fyrir því í íslenskum blaðaskrifum hver er raunverulegur tilgangur Bandaríkjaóstjórnarinnar og Breta er með því að ræna, níða niður og drepa Írakana."

Stóriðjuáform stjórnarinnar eru Helga heldur ekki að skapi. "Virkjunin við Kárahnjúka er eins og hver önnur eyðileggingastarfsemi á þessu landi og almenningur rís ekki upp, síður en svo. Þeir framlengja völdin hjá þessum andskotum."
Kunna íslendingar þá ekki að mótmæla og standa á rétti sínum? "Þetta hefur hey í hausnum í staðinn fyrir heila. Ég þykist vita að það sé hey í hausnum á þessu fólki, ekki síst þessum dómurum mínum og læknum á Kleppi. Ég var nú drifinn á Klepp einum þrem sinnum út af því að saksóknari, sem var framsóknaríhaldsmaður þá, heimtaði að ég væri settur á Klepp til sálarrannsóknar og ég hafði nú svo sem lítið við það að athuga. Það var nú til þess að reyna að framkalla minnimáttarkennd í mér en Kleppur er nú bara ekkert öðruvísi en önnur sjúkrahús.

Ég hefði samt gjarnan vilja fá almennilega álitsgerð því ég er engu nær um hvernig ég er innréttaður hvað geðheilbrigði snertir af því að hafa lesið skýrslur læknisins þar."

Helgi segir almenning lítið hafa amast við sér í gegnum tíðina og að hann hafi ekki fundið fyrir því að fólk liti á sig sem hættulegan geðsjúkling. "Það hefur farið mjög lítið fyrir því og þeir sem hafa sinnt mér hafa verið vinsamlegir við mig heldur en hitt. Þeir eru fáir sem hafa verið að skíta á sig við mig fyrir utan þræla og læknana sem eru að ljúga geðveiki upp á mig. Skyldu þeir hafa fríun frá geðveiki þessir læknar sem eru að dæma mig geðveikan? Mér er það spurn. Ætli þeir hafi verið athugaðir sem geðsjúklingar? Ég veit það ekki?

Hver skapaði sýkla?

Helgi er orðinn 84 ára en er ern og ætlar ekki að láta deigan síga á meðan hann heldur heilsu og hefur undanfarið látið sjá sig með skilti þar sem hann spyr hver hafi skapað sýkla.
"Hver skapaði sýkla? Ég hef engan fundið enn þá sem getur svarað því. Þess vegna er ég nú að spyrja. Það er sagt á mörgum stöðum og í mörgum bókum að himnadraugurinn hafi skapað allt. Skapaði góður guð sýkla sem drepa milljónir manna á hverju ári?

Ég hef ekki hugsað mér annað en að halda áfram að spyrja svo lengi sem ég get. Ég ætla ekki að hætta fyrr en ég hef hreinsað persónu mína af glæpaverkum ríkisvaldsins á mér og því forkastanlega ofbeldi sem ég hef engar bætur fengið fyrir. Ég hef verið handtekinn svo tugum skipta skiptir. Tukthúsaður og engar bætur fengið fyrir það. Þá hefur enginn viljað sinna þeirri beiðni minni, nú á seinustu misserum, að skrá það í þjóðskrá að ég sé búinn að ónýta viðurkenningu mína á draugnum.

Samningurinn var gerður við guð segja þeir og þeir hafi því ekki nokkur tök á því að eyðileggja hann. En þeir höfðu nú samt tök á því að gera þennan samning."


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff