»  off record  »  Framsóknarblóð
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Framsóknarblóð
Laugardagur, 12. desember 2009

Framboð á formannsefnum Framsóknarflokksins virðist ætla að verða mun meira en eftirspurnin. Þrátt fyrir að hafa ítrekað lýst því yfir opinberlega að ég sé tilbúinn til þess að bjarga flokknum með góðra manna hjálp hefur engin beiðni borist.

Ég hef því íhugað að gefa kost á mér í formannskjörninu en get bara ekki hugsað mér að ganga í flokkinn. Ætli það sé skilyrði fyrir framboði eða er kannski nóg að skila bara inn blóðprufu?

Annars sýnist mér minn gamli bekkjarbróðir, Páll Magnússon, vera efnilegasti frambjóðandinn enn sem komið er. Mér finnst hann að vísu ekkert sérstaklega skemmtilegur en tel mig geta fullyrt að hann sé nokkuð heill í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Svo hefur það líka sýnt sig að það hjálpar Framsóknarflokknum ekki neitt að vera með formann sem er fyndinn og hlægilegur á víxl.


| 17:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff