»  off record  »  Á deiti með ljóshærðri læknagellu!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Á deiti með ljóshærðri læknagellu!
Mánudagur, 07. júní 2010

Skemmtilega sýrðar draumfarir eru kaupauki sem fylgja nikótínplástrum. Það er að segja ef maður gerist svo djarfur að sofa með plástur á sér. Síðustu sjö nætur hafa verið sérlega fjörugar hjá mér og ævintýrin með slíkum ólíkindum að mig langar helst til þess að sofa með svona sækadellikk plástra í þúsund og eina nótt.

Í nótt sem leið dreif ég mig einhverra hluta vegna í blóðprufu og þar tóku á móti mér tvær læknagellur í bláum sloppum. Önnur þeirra var ljóshærð og hét skrýtnu nafni sem byrjaði á S.

Við vorum rétt búin að heilsast þegar við felldum hugi saman og blóðprufan öll var eitt allsherjar daður þar sem við lékum leikinn af stakri snilld. Hún dældi að vísu svolítið miklu blóði úr mér enda ætlaði hún víst að kanna ansi margt. Hún sagði mér líka að það þýddi ekkert fyrir mig að reyna að ljúga að sér vegna þess að blóðið kjaftaði frá öllu. Þess vegna ákvað ég strax að viðurkenna að þetta gæti ekki verið að gerast vegna þess að ég verð ekki ástfanginn af ljóshærðum konum. Bara dökkhærðum.

Þetta breytti þó engu um það að skyndilega vorum við komin upp á Fréttablað þar sem við skrifuðum saman opnu fréttaskýringu um hversu tregar konur eru til þess að nota smokka við skyndikynni. Þetta er víst alvarlegt samfélagsmein.

Ekki man ég hverngi sambandi mínu og læknisins unga lauk en ég var eiginlega ennþá pínu skotinn í henni þegar ég vaknaði. Og ég veit ekki einu sinni hvað hún heitir.

Get ekki beðið eftir því að fara að sofa á eftir. Set kannski bara á mig tvo plástra.


| 20:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff