»  off record  »  Elsku fyrirmyndin mín
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Elsku fyrirmyndin mín
Þriðjudagur, 29. júní 2010

James Douglas Morrison,
Père Lachaise kirkjugarðinum,
París,
Frakklandi.

Hæ Jim!

Á Íslandi eru allir að skrifa fyrirmyndunum sínum bréf í dag og þess vegna verð ég að senda þér nokkrar línur.

jim.gifNú hlýtur þú að verða manna fyrstur til þess að samþykkja að ég hafi verið frekar óheppinn með val á fyrirmyndum í lífinu og líklega ert þú nú sú allra versta.

En við eigum bara svo margt sameiginlegt. Þú kvaddir til dæmis þennan heim sumarið 1971 skömmu eftir að ég mætti þangað. Ég er líka mjög lélegur söngvari en hef heldur aldrei látið það aftra mér og syng oft í sturtu og þegar ég er einn að keyra í bílnum mínum. Ég er líka frekar takmarkað ljóðskáld en er því miður ekki jafn duglegur að gefa út og þú varst.

Svo erum við auðvitað báðir súrrandi geðveikir og þunglyndir fíklar. Ég hef samt aldrei droppað sýru eða verið í ólöglegu dópi en það er nú bara vegna þess að áfengi er svo gott og hefur alla tíð dugað mér til þess að geta rölt í kúrekastígvélum og leðurbuxum niður Love Street. Mig langar samt að kenna þér um hversu drungalegur og fúll gaur ég er. Ég meina ekki fer ég að klína því á Bogart.

Annars er voða lítið að frétta héðan og ég er bara waiting for the sun eins og þú.

Okei bæ Jim minn,

þinn Tóti


| 11:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff