»  off record  »  Forheimskandi kynlíf
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Forheimskandi kynlíf
Mánudagur, 12. júlí 2010

Bloggið sem segir sex: I

Kynlíf er ofmetið. Maður verður í það minnsta að selja sér þá fullyrðingu þegar maður hefur komist að þeirri niðurstöðu að maður er ekki hæfur til sambúðar og hefur ákveðið að búa einn. Einbúinn þarf að neita sér um þann lúxus að þurfa bara að velta sér á hina hliðina til þess að rekast á áskriftardráttinn en þar er kannski ekki um neitt stórtjón að ræða þar sem fólk virðist nú alltaf fyrr eða síðar þurfa að sækja sér kynlíf fram hjá maka sínum.

Það er hins vegar efni í annað blogg. Höldum okkur frekar við einbúann. Fólk sem býr eitt með sjálfu sér fær nú oft miklu meira hopsasa pa sengekanten en sambúðarfólk vegna þess að alltaf má finna sér viljuga bólfélaga í skólum, í vinnunni og á börum. Þar sem ég er illu heilli ekki í námi, atvinnulaus og í sjálfskipaðri útlegð frá vínveitingastöðum tefli ég í sérlega þröngri stöðu. Eiginlega er Internetið eina veiðilendan sem mér er opin og þar er nú sjaldnast á vísan að róa.

Einkamál.is er til dæmis stórvarasamt og leiti maður fanga þar eru yfirgnæfandi líkur á því að maður endi með einhverri klessu sem sigldi rundir fölsku flaggi kynbombu eða þá að maður endar frammi fyrir dómara og sefur ekki á næturnar af áhyggjum af því að Halla Gunnarsdóttir komist að því hvað maður heitir.

Þegar maður hefur málað sig út í þetta horn tilverunnar má reyna að bjarga geðheilsunni með því að selja sér að kynlíf sé ofmetið. Auðvitað er það kjaftæði vegna þess að kynlíf er alltaf vanmetið. Þannig er nú bara það. Hins vegar þarf ekki að deila um það að kynlíf gerir fólk að heimskingjum og það er nú aldeilis huggun harmi gegn.

Þessa staðreynd má sanna. Auðveldlega. Tökum sem dæmi par sem er enn að kynnast og er nýbyrjað saman. Þá gengur allt út á kynlíf og allar stundir eru notaðar til þess að hamst í kanínumaraþoninu. Fólk verður svo vitskert í tilhugalífshamaganginum að það fer að telja sér trú um að það geti ekki lifað án hvors annars. Auðvitað reginfirra eins og síðar á eftir að koma á daginn. Í greddunni ákveður fólk því oft að eyða ævinni saman og lætur svo vini sína og vinkonur steggja sig í heilagt hjónaband.

Síðan þegar búið er að ríða í öllum líkamlega mögulegum stellingum í X-mörg ár, í öllum herbergjum, í bílnum, úti í Gróttu og á umferðareyju við Sæbrautina hættir þetta að vera gaman. Þegar greddan gufar endanlega upp áttar fólk sig á því að ástin var blekking og það snýr sér að öðrum. Með tilheyrandi framhjáhöldum, dramatík og skilnaði.

Ástæðan fyrir því að of stórir skammtar af kynlífi gera fólk að fábjánum liggur mjög aftarlega í sköpunarsögu okkar og leynist því einhvers staðar í heilatetrinu þar sem allar hestu frumhvatir okkar, fight, flight or fuck eru geymdar. Áður en kynlíf varð iðnaðarvara og hippar og femínistar upplýstu að konum finnst líka gott að ríða þá gekk þessi dýrslega og fremur ógeðslega athöfn fyrst og fremst út á það að viðhalda kynstofninum.

Og þarna aftast í heilabreininu okkar er þessi meining enn í góðu gildi. Við erum forrituð til þess að gera do-do til þess að fjölga okkur. Það liggur svo auðvitað í augum uppi að ef heilinn okkar heldur að við séum að uppfylla þessa frumskyldu okkar þrisvar til fimm sinnum á dag alla daga vikunnar þá fer hann nú heldur betur að slaka á enda óþarfi að vera að beita sér og reyna að gera eitthvað gáfulegt og uppbyggilegt ef maður er að uppfylla meginhlutverk sitt alla daga. Og þannig verðum við að fábjánum.

Þess vegna líður mér svo vel með sjálfan mig þegar ég fer upp í rúm með þykkar skáldsögur Dostojefskís á kvöldin. Vegna þess að ég veit að ég er ekki vitlaus eins og kynverurnar.


| 21:02 |
komment

Ást og kærleikur bera uppi allt kynlíf - sem byrjar yfirleitt ekki fyrr en eftir fertugt.
kv.
eir

Nr. 1 | eiríkur jónsson | 13.07.2010 | 11:38:49 | [+] |

The hormones released after sex are intended to make us feel bonded to the person with whom we have sex. When they wear off, if there is no real emotional or intellectual bond, the spell is broken.

Nr. 2 | Lissy | 14.07.2010 | 0:33:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff