»  off record  »  Kynósa ilmur af konum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kynósa ilmur af konum
Sunnudagur, 18. júlí 2010

Bloggið sem segir sex: VI

Kynin eru bæði þónokkuð fyrir að úða yfir sig dýrum ilmvötnum. Tilgangurinn er mér ekki alveg ljós en líklega þykir átöppuð anganin fýsilegri en líkamslykt. Alkunna er að drottning ljósknanna, sjálf Marilyn Monroe, svaf í einum dropa af Chanel No. 5.

Kannski er náttfatnaður Monroe til vitnis um að konur kunni að nota ilmvötn í réttu magni og heldur þykir manni nú þessi framleiddi ilmur fara konum betur en heimskara kyninu. Karlmenn, og þá sérstaklega þeir sem kenna sig við hankka og metró, virðast standa í þeirri meiningu að nota eigi svona um það bil hálfa flösku af rakspíra hverju sinni. Þannig er ekki óalgengt að fólki verði flökurt á mannamótum þegar hinir ilmóðu mæta á staðinn.

Þegar ég var 13 ára sagði stelpan, sem afgreiddi í sjoppunni í Brekkuvali, mér að ég ætti að nota rakspíra til þess að loka húðinni eftir rakstur. Annars fengi ég bólur. Ég hef því notað þennan vökva sparlega í þessum mjög svo praktíska tilgangi. Mér hefur því verið nokk sama hvort þetta sull heiti Cucci, Diesel, Paco eða hvað sem er annað svo lengi sem það er ekki Old Spice. Þangað til ég notaði um daginn Versace rakspíra og varð næstum sjálfkynhneigður af ilminum sem var dásamlega ögrandi.

Hvað konurnar varðar er ekki hægt að fá hreinan og hráan kynþokka á flöskum. Hann verður til við sérstakar aðstæður og sprettur fram daginn eftir gott djamm. Þegar þær skríða fram úr á hádegi daginn eftir, skella á sig skyndimeiki og smá ilmvatni og drífa sig út í sólina blandast allir þessir ilmgjafar áfengisþefnum frá því nóttina áður og úr verður einhver allra kynþokkafyllsta lykt sem nokkurt mannlegt nef getur numið.

Ekki veit ég nákvæmlega hvað það er í þessum kokteil sem kveikir kynlöngunina hjá karldýrinu en sennilega er eitthvað í kollektívu minni okkar sem tengir áfengi við lauslæti og hömlulítið kynlíf. Auk þess sem flest fólk sem hefur lifað nokkuð eðlilegu lífi hefur notið holdsins lystisemda undir kröftugum áhrifum áfengis.

Í þessum ilmi mætast því næturlífið, hömluleysið, og auðvitað konan í öllu sínu veldi þannig að á mann rennur víma sem felur í sér fyrirvaralaust vitstol og brjálaða lögnun til þess að þykjast vilja fjölga mannkyninu.

Ég sat við hliðina á konu með þessa angan í bíó fyrir viku og ég er enn að ná mér.


| 18:12 |
komment

Við hin köllum þetta þynnkugreddu :)

Nr. 1 | Sveinka | 18.07.2010 | 22:37:24 | [+] |

Mjög svo satt. Þetta er eitthvað sem ég kannast við en ekki getað skilgreint á svona hnitmiðaðan hátt. Þetta er eflaust greipt djúpt í okkar fornustu gen.

Nr. 2 | Frank M | 30.07.2010 | 0:13:50 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff