»  off record  »  Kyntákn illskunnar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kyntákn illskunnar
Miðvikudagur, 14. júlí 2010

Bloggið sem segir sex: III

Ég er ekki einn um að vera í uppnámi yfir stóra Mel Gibson bömmernum. Mér skilst að heilu saumaklúbbarnir nötri og klofni nú vegna ágreinings um hvort þessi fyrrum kynþokkafyllsti karlmaður í lifenda tölu (var fyrstur manna til þess að hljóta þessa nafnbót hjá People Magazine árið 1985) sé djöfull í mannsmynd.

Þetta er auðvitað vont mál við að eiga og auðvitað er fólk miður sín og í rusli. Hvernig má það vera að maðurinn sem einu sinni skartaði flottasta rassi í heimi sé orðinn genuine asshole?

Mín fyrstu viðbrögð við þessum sorgarfregnum voru nú svipuð og hjá Davíð Oddssyni þegar hann komst að því að Árni Johnsen hefði vafið hálfu Þjóðleikhúsinu í segldúk og selflutt til Eyja. Ég hristi bara hausinn og sagðist ekki skilja hvað hefði komið fyrir drenginn.

Svo fór ég að hugsa og reyna að finna einhverjar ástæður fyrir þessu og flytja mestan þunga sektarinnar á eitthvað annað en manninn sjálfan. Þetta er sjálfkrafa viðbragð hjá alkóhólistum eins og mér og honum Mel, vini mínum til áratuga, og þess vegna þýðir þetta ekkert að mér finnst hann hafa hegðað sér til fyrirmyndar.

Og án þess að ég vilji reyna að réttlæta eitthvað þá held ég að við séum ekki að fylgjast með afhjúpun skrímslis heldur er hér tætt og kvalin sál að brjótast undan oki siðmenningar með þessum fítonskrafti sem líklega má rekja til þess að Gibson er kaþólskur og hefur því mátt búa við ýmis höft í samlífinu sem lausgirtir og hundheiðnir Íslendingar innan þjóðkirkjunnar hafa enga reynslu af.

Mel var í hjónabandi, lengst af farsælu, með hinni ágætu konu Robyn og saman eignuðust þau sjö börn sem er kannski ekki svo mikið þegar haft er í huga að þau máttu ekki nota getnaðarvarnir. Kannski gerðu þau það bara 7 sinnum frá 1980 til 2009 þegar Mel fríkaði út og fór að halda við hana Oksana Grigorieva sem hann vill um þessar mundir helst jarðsetja í rósabeði?

Þetta er eitt. Hitt er svo að skilnaður er svona álíka heitur og fóstureyðingar í hugmyndaheimi kaþólikka þannig að Mel og Robyn hafa verið neydd til þess að hanga saman. Nú vita allir sem eitthvað vita um lífið að mannskepnan er ekki einkvænisvera og verður að skipta reglulega um maka og rekkjunauta til þess að halda sönsum. Höfundar allskyns trúarrita eins og til dæmis Bifflíunnar hafa reynt að halda aftur af mannlegu eðli með gölnum trúarsetningum um heilagt samband karls og konu þar til dauðinn aðskilur. Nú er 21. öldin gengin í garð og kannski spurning um að fara að leyfa náttúrunni bara að hafa sinn gang án þess að láta fólk kveljast endalaust með innistæðulausan móral?

Hvað um það. Ég held að Mel hafi geggjast af þeim hugarfarshlekkjum sem trú hans lagði á hann. Nógu andskoti var trúarhitinn mikill í honum þegar hann gerði bíómynd á óskiljanlegu tungumáli um hvernig Rómverjar breyttu Jesúm með barsmíðum í blóðuga moppu áður en þeir krossfestu hann. Sú mynd ber vissulega sjúkum huga vitni.

Áður en hann byrjaði að brölta með Jesúmyndina sína virtist allt leika í lyndi og í gegnum árin hafa ekki farið aðrar sögur af Mad Mel en að hann væri fyrirmyndar fjölskyldufaðir, ástríkur og góður. Heimamyndböndin sem hann gerði um gerð Lethal Wepon myndanna benda líka til þess að þar sé á ferð hress og skemmtilegur maður og einhvern veginn segir mér svo hugur að heiðursmennirnir Richard Donner, Danny Glover og Joe Pesci hefðu ekki nennt að vinna jafn oft og raun ber vitni með manninum ef hann hefði verið skíthæll. (Það vinnur til dæmis enginn oftar en einu sinni með Val Kilmer sem hefur alltaf verið viðurkenndur drullusokkur).

Ég held að það liggi í augum uppi að við erum að horfa upp á góðan mann ganga af göflunum með ömurlegum afleiðingum. Ekkert nýtt í því svosem enda er fólk alltaf að tapa glórunni af alls konar ástæðum. Í tilfelli Gibsons held ég að við þurfum ekkert að velkjast í vafa um að trúin og höft hennar hafi ýtt honum fram af hengifluginu.

Hingað til hafa bömmerarnir hans verið alveg OK svona á alkóhólíseraðan mælikvarða. Eitthvað aðeins að keyra fullur og hella sér með óbótaskömmum yfir nefstóra löggu af gyðingaættum. Eiginlega pínu fyndið ef maður pælir í því og fólk er líka alltaf að pönkast á löggunni enda er svona núningur eiginlega rammasta taugin milli almennings og fulltrúa yfirvaldsins.

Mel var þarna í vímunni eitthvað í nöp við gyðinga fyrir að hafa drepið 1/3 af Guðinum hans þegar þeir tryggðu Jesúm guðlegan ódauðleika með því að negla hann á krossinn. Ef hugsun Mels hefði verið rökrétt og skýr þarna hefði hann átt að þakka löggumanninum fyrir að forfeður hans áttu þátt í að gera Jesús að guði og tryggja Mel svakagróða af bíómyndinni um píslir hans um það bil 2000 árum síðar.

En eina ferðina enn. Trúin. Samkvæmt meintu vefriti hataðra auðmanna, Pressan.is, segir pólska klámstjarnan Violet Kowal samfarir sínar við Gibson ekki sléttar. Hún segir Gibson hafa verið “ofbeildishneigt kynlífsskrímsli.” Margur kórdrengurinn hefur nú í gegnum tíðina gefið presti sínum svipaða lyndiseinkunn. Þá býsnast Kowal einnig yfir því að skrímslið hafi ekki viljað nota smokk. Nú er því bara þannig farið að Mel má ekki, samkvæmt valdboði almættisins, nota getnaðarvarnir þannig að í þessu máli eins og svo mörgum öðrum eru honum allar bjargir bannaðar.

Mál Mels er það sem aumingjar kalla jafnan “mannlegan harmleik” þegar þeir gera eitthvað af sér. Mel er vissulega aumingi og tragískari en Hamlet sem hann lék nú einu sinni með ágætum en bíðum aðeins með að krossfesta hann sem skrímsli. Þannig kemur siðað fólk ekki fram við sjúka meðbræður sína.

Frailty, thy name is woman.


| 22:11 |
komment

þrusu pælingar. Nice.

Nr. 1 | Swaage | 16.07.2010 | 15:40:37 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff