»  off record  »  Megi myntkörfufólkið brenna í Helvíti!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Megi myntkörfufólkið brenna í Helvíti!
Miðvikudagur, 28. júlí 2010

Ég hef verið sakaður um að vera fordómafullur mannhatari og gengst fúslega við því en þó í þeirri bjargföstu trú að ég er sanngjarn mannhatari og eins og Dirty Harry hata ég alla jafnt. Ég met fólk ekki eftir litarhætti, kyni, kynhneigð, trú eða neinu öðru smáatriði sem greinir okkur, sem öll erum manneskjur, hvort frá öðru.

Heimska er það eina sem ég fyrirlít í fari fólks og það er einmitt þess vegna sem ég þarf að kasta upp af hreinum viðbjóði svona fimm til tíu sinnum á dag um þessar mundir þegar ég sé Facebook-statusa og fréttir af myntkörfudómum.

Nú liggur fyrir að sumir eru heimskari en aðrir. Og sumir eru gráðugri en aðrir og þeir heimskingjar sem mest ber á þessa dagana er myntkörfufólkið sem er bæði heimskt og gráðugt og vill mitt í stórkostlegri kreppu og skelfingarástandi í efnahagsmálum fá allt fyrir ekki neitt. Þetta eru apaheilar sem veðjuðu á íslensku krónuna (af öllu) og tóku lán í erlendri mynt! Ég verð bara að segja það hreint út að ég skil ekki að nokkur einasta manneskja fædd og uppalin á Íslandi hafi tekið þennan sjéns.

Sjálfur er ég 39 ára og hef fylgst með fréttum frá því ég var barn og ef ég hef lært eitthvað af því þá er það að íslenska krónan sígur og fellur og er eins og korktappi í ólgusjó.

Ég undrast svo sem ekkert að Bubbi Morthens hafi mögulega tekið myntkörfulán en hlýt að spyrja alla hina hvort þeim hafi verið sjálfrátt? Og að reyna svo að fela sig á bak við að hafa ekki ráðið gerðum sínum (í alvöru?). Bankinn hélt þessu að þeim! Sérfræðingar sögðu þeim að gera þetta. Ok. Fair enough. Þið gerðuð eins og bankinn sagði ykkur að gera. Og þá spyr ég á móti í hvaða fullkomna heimi er bankinn vinur þinn? Hann er það ekki í Las Vegas og hann er það ekki í Lottóinu. Bankinn er aldrei vinur þinn og hefur aldrei verið það.

En þetta gerðuð þið asnarnir ykkar og gjammið núna um að á ykkur hafi verið brotið og treystið á Runólf rektor og siðspillta framsóknarkúreka sem ofsækja fólk á heimili þess til þess að rétta ykkar hlut. Hlut sem hefur verið rangur og illa fenginn frá upphafi.

Nú er ég ekki lögfróður maður en það stendur svo kýrskýrt og svart á hvítu í lögum að það er ólöglegt að tengja íslensk lán við erlenda mynt. Lagatextar eru oft flóknir og snúnir en þessi klausa er svo sjúklega auðskilin að ég missti andlitið þegar mér var bent á hana fyrir rúmu ári. Ég þurfti því ekkert að bíða eftir þessum hæstaréttardómi til þess að vita að þessi lán yrðu dæmd kolólögleg. En auðvitað tíðkast ekki að fara inn á althingi.is og lesa lög áður en maður tekur lán.(Enda er enginn að ætlast til þess).

Heimska og vankunnátta á lögum hefur samt sem áður aldrei virkað sem vörn fyrir rétti. “Ó sorrí. Já, já . Ég heiti Mel Gibson og ég barði barnsmóður mína í hel og meig á jarðneskar leifar hennar. En ég vissi ekki að það væri bannað með lögum. Ókey bæ.”

Gott og vel. Þetta er ólöglegt og melludólgarnir í bönkunum og fjárfestingarfyrirtækjunum eiga ekkert gott skilið. En það á körfufólkið ekki heldur. Þau eru hinn aðilinn í ólöglegum gerningi. Þetta eru kúnnar vændiskonunnar og eiga því ekkert betra skilið en að fá sekt, fangelsisdóm og nöfn sín birt í fjölmiðlum. (Vonandi gefur Halla Gunnarsdóttir þessu gaum). Gengisgengið er aðili að glæp gegn íslenskum efnahag og þá um leið íslensku þjóðinni. Þetta eru í besta falli kjánar, jafnvel svo vel meinandi að þeir telja íslenskum efnahag borgið bara ef þeim verður reddað, sem vilja svo senda okkur hinum reikninginn fyrir fíflaganginum.

Og til þess að bíta nú höfuðið af skömminni er gapað og gasprað um skjaldborg um heimili myntkörfufólksins. En þá BARA HEIMILI myndkörfuskuldaranna. Ekki okkar hinna sem munum þurfa að borga fyrir asnaskapinn. Og auðvitað hvarflar ekki að myntkörfufólkinu eitt augnablik að skammast sín. Til þess er frekjan, yfirgangurin og heimskan allt of mikil.

Þetta lið dirfist meira að segja að ganga svo langt á þessum súru Feisbúkk-veggjum sínum að boða blóð og byltingu ef það verður dæmt til þess að borga af lánum sínum, peningum sem það er búið að taka á móti og eyða, á óverðtryggðum íslenskum vöxtum. Jú jú. Vissulega verður bylting en hún verður ef körfuliðið kemst upp með samningsvexti. Og sú bylting verður tæpast gegn stjórnvöldum, löggunni eða dómstólum. Í þeirri byltingu munu hinir, drjúgur meirihluti þjóðarinnar, sem voru of "vitlausir" til þess að láta myntkörfulánið (lán= happ þið skiljið) úr hendi sleppa, fara út á göturnar og murka líftóruna úr frekjudollunum. Það hafa nefnilega fleiri hagsmuna að gæta.

Hér eru til ágætis lagarök fyrir því að á Íslandi gildi íslenskir vextir þannig að gengið ætti aðeins að spara sér að grenja eitthvað um að lög skuli standa. Síðan væri ágætt að hafa í huga það sem forfeður okkar lögðu til grundvallar tilveru okkar, að með lögum skuli land byggja og ólögum eyða. En það er nú einmitt það sem sérgæskuliðið stefnir að. Rústa því sem eftir er af samfélaginu til þess að sleppa billega frá hæpnum fjármálagjörningum á kostnað annars fólks .

Ég veit að það þorir enginn að segja þetta beint við gengisgengið enda mætti ætla að hver einasti fjölmiðlamaður á landinu sitji sveittur í myntkörfu þannig að allur fréttafluttningur hér er er vægast sagt undarlegur og gengur út á það eitt að þóknast þessum sjúklega háværa minnihluta.

Ég ætla því að taka ómakið af þeim sem þegja á meðan enginn þorir og segja það hreint út:

Brenniði í Helvíti freku fífl.
(Ekki bókstaflega samt sko. Stundum er tekið svona til orða þið vitið).

Legal disclaimer:

(Sá leiði misskilningur fær stundum byr undir vængi að ég skrifi í æðiskasti, uppfullur af gremju, vegna þess að ég nota ljót orð og fjalla um fólk af lítilsvirðingu. Þetta er bull og oftast brosi ég hringinn á meðan ég "æsi" mig á lyklaborðinu. Ég velti mér svosem lítið sem ekkert upp úr þessu myntkörfubulli enda kýs ég að líta á lífið allt sem leik eða ofvaxinn og oft frekar misheppnaðan brandara. Mér finnst bara svo gaman að æra óstöðugar sálir og þar sem ég flestar tilraunir mínar undanfarið hafa verið vindhögg ákvað ég að dangla aðeins í viðkvæmasta liðið sem nú tröllríður umræðunni. Verði ykkur að góðu! Broskall)


| 22:30 |
komment

Væri ekki nóg að það sæi sóma sinn í því að hoppa upp í rassgatið á sér?

Nr. 1 | Eva | 29.07.2010 | 12:49:18 | [+] |

Enn einn bjöllusauðurinn að skrifa, sem er vitur eftirááá,
Í þessari grein er ekkert nýtt!!!

Nr. 2 | droplaugur | 29.07.2010 | 13:21:52 | [+] |

Væri ekki nær að hata þau fjármagnsfyrirtæki sem skelltu krónunni niður í svaðið??

Væri ekki nær að hata þær bankastofnanir sem tróðu þessum gjaldeyrislánum í kokið á almenningi vitandi að þau væru ólögleg..

Væri ekki nær að hata útrásavíkingana sem sugu alla sjóði tóma og skildu eftir sig sviðna jörð og tugi ára uppbyggingarstarf framundan.

Væri ekki nær að hata lífeyrirsjóði sem spiluðu með peninga annarra upp á kunningjaskap og klíku annarra bankastofnana.

Væri ekki nær að hata fyrirverandi ríkisstjórn fyrir að hafa ekki lyft fingri á móti auðvaldinu í landinu.

Væri ekki nær að hata FME fyrir að hafa setið á rassgatinu og horft á flugeldasýninguna með lokuð augun.

Væri ekki nær að hata núverandi ríkisstjórn fyrir að sýna almenningi puttann og styðja fjármagnseigendur fram í rauðan dauðann.

Væri ekki nær að lesa fréttirnar frekar en að einblína á teiknimyndasögunnar í blöðunum??

Nr. 3 | Þröstur | 29.07.2010 | 13:28:03 | [+] |

"Mér finnst bara svo gaman að æra óstöðugar sálir "

Þér eruð semsagt tröll, sbr. http://en.wikipedia.org/wiki/Troll_%28Internet%29

Nr. 4 | Tóti | 29.07.2010 | 13:55:29 | [+] |

http://m5.is/?gluggi=gjaldmidill&gjaldmidill=10&timabil=allt

Nr. 5 | LS | 29.07.2010 | 14:00:14 | [+] |

Svo allrar sanngirni sé gætt þá snýst þetta ekki um hvort fólk borgi lán til baka "sem það er búið að taka á móti og eyða" heldur hvort borga skuli tvõfalda upphaflega fjárhæð eða þaðan af meira til aðila sem veitti lán með ólöglegum skilmálum og það í vondri trú. En væntanlega er tilgangur færslunnar ekki að gæta sanngirni heldur að vekja athygli og stuða og vera töff - það má.

Nr. 6 | Magni | 29.07.2010 | 14:00:23 | [+] |

Loksins vaknaður og kominn á ról og rokkar fínt.

Haltu áfram að ydda blýantinn og láta vaða.

Pistalar þínir bregðast aldrei.

Nr. 7 | þorfinnur | 29.07.2010 | 14:21:00 | [+] |

Thetta er nù svo mikid bull, ad thad er ekki svaravert. Màlid snyst um thad, ad fjàrmagnsfyrirtækin hèldu vìsvitandi òlöglegum myntkörfulànum ad fòlki og fyrir thad mega thau gjalda. Enginn rekur upp ramakvein, thegar milljarda kùlulàn eru afskrifud fyrir ùtràsarhyskid. Thad thykir ekki einu sinni frèttnæmt. Bankarnir eru thegar bùnir ad hagnast vel à thessum gjörningi sìnum.
Èg hvet myntkörfufòlkid til ad greida ekki krònu, fyrr en sanngjarn dòmur hefur verid kvedinn upp, thòtt leita thurfi til Evròpudòmstòlsins eftir rèttlæti. Vid erum bùin ad fà nòg af lögleysunni à thessu bölvada landi.

Nr. 8 | Stefan | 29.07.2010 | 14:34:32 | [+] |

Snildar grein. Þetta sama lið og heldur því fram að bankarnir "tróðu" þessum lánum ofan í þau, var alveg brjalað þegar Glitnir hætti með erlend lán og rauk í aðra banka til að komast í CHF og JPY -- visu nakvæmlega hverning lánið mundi fara ef ílla færi á Íslandi en það VARÐ bara að fá sér annað fellihýsi. Vilja bara ekki taka abyrgð á eigin akvörðun og halda þvi fram við þá sem stiðja ekki 60% niðurfellingu að ÞEIR eru siðlausir.

Nr. 9 | Runar B | 29.07.2010 | 14:53:15 | [+] |

Bara svona, ef þú ert í stuttu pilsi ert þú að byðja um nauðgun? Vitandi frekar takmarkað um samningagerð, hvort sem er í bönkum eða what ever keypti ég mér GAMLANN bíl og var mér tjáð að myntkörfulán væri absólútlí the way to go! Verandi svona "heimsk og gráðug" tók ég því. En svo lagði Ísland in pöntun á Blessun, og restin er history!! Ég er EKKI heimsk né gráðug, og það var ekki gott á mig eða aðra að lenda í svon hryðjuverka afleiðingum!! Þú aftur á móti ert sannur og jafnréttissinnaður mannhatari!! Peace!

Nr. 10 | Erna Ólafsdóttir | 29.07.2010 | 14:55:43 | [+] |

Hjartanlega sammála (þó þetta sé svolítið ýktur stíll hjá þér á köflum)! :-)

Nr. 11 | Ásinn | 29.07.2010 | 14:57:21 | [+] |

Það þorir enginn að segja þetta en það er heilmikið til í þessu hjá þér.
Það sem fólk með körfurnar er að heimta núna eru hagstæðari lán en námslán og hafa þau nú hingað til verið talin hagstæð.
Svo á margt gamalt fólk sparifé sem það notar til að gefa barnabörnunum jólagjafir er það vont fólk?
Haltu áfram að segja sannleikann.
bkv

Nr. 12 | María | 29.07.2010 | 15:44:57 | [+] |

Hahaha! Frábær pistill!

Nr. 13 | Lára | 29.07.2010 | 15:53:45 | [+] |

Hahahaah...einn á háum hesti.

Er ekki gott að vera svona mikið betri en almúginn?

Nr. 14 | Ibba Sig. | 29.07.2010 | 16:27:08 | [+] |

hræðileg tilgerð í þessum pistli.Virkilega vont blogg.

Nr. 15 | Teitur | 29.07.2010 | 16:31:48 | [+] |

Þetta er án vafa besta færsla um myntkörfulánin sem ég hef lesið. Vandamálið við þennan mikla meiri hluta fólks sem tóku ekki gengistryggð lán er að þau eru þögul. Hver nennir enda að lenda í fuglagarginu.

Nr. 16 | Már | 29.07.2010 | 17:29:16 | [+] |

Eitt stórt LIKE! :D

Nr. 17 | Eiki S. | 29.07.2010 | 17:40:29 | [+] |

HAHAHAHAHAHA

góð grein

Samt veit ég að bankanir héldu þessu að fólki meir en þeir vilja viðurkenna - en kannski minna en myntkörfufólkið vill meina

Það ljóta sem bankanir gerðu var að á sama tíma veðja gegn krónunni. Það gat engin lántakandi vitað á sínum tíma og þá er frekar að líkja bönkunum við vændiskonu með aids og lántakendum sem fórnarlömbum sjúkdóms bankanna

Ef að bankanir væru ekki á ábyrgð ríkisins núna þá hefðu lántakendur meira til síns máls, en það er ekkert eðlilegt við að fólk (skattgreiðendur) sem komu ekki nálægt þessu greiði 90% mistök bankanna og 10% mistök lánþega

Fyndin grein engu að síður

Nr. 18 | Gísli Freyr | 29.07.2010 | 17:53:10 | [+] |

Ó já :) Takk muahahahaaa

Nr. 19 | Swaage | 29.07.2010 | 18:14:57 | [+] |

Hér er kona sem heldur höfði þótt hún eigi um sárt að binda:

http://www.youtube.com/watch?v=7J_a6aRpoG4

Nr. 20 | Jonas | 29.07.2010 | 18:38:27 | [+] |

Tær Snilld!

Nr. 21 | Snorri | 29.07.2010 | 18:55:13 | [+] |

Skemmtilegur reiðilestur, takk.

Nr. 22 | Björgvin Þór | 29.07.2010 | 19:02:24 | [+] |

Þú ert að setja fullmarga undir sama hatt að mínu viti. Ég veit um fjölmarga sem tóku þessi lán til lengri tíma vegna þess að þegar horft er til 20-40 ára núllast sveiflur á gengi út, eftir standa afar hagstæðir vextir. Ef ég fengi einhverju að ráða myndi ég vilja halda láninu en það er víst ekki hægt vegna þess að það er ólöglegt og nú á að setja vexti á lánið aftur í tímann, kokka upp skilmála sem ég hefði ekki gengið að þegar ég tók lánið ... samningum breytt aftur í tímann, hvaða samningar gilda þá í landinu, er þetta sanngirnin sem þú vilt að sé stunduð að lög gilid um suma en ekki aðra? Samningalögin er að mínu viti frekar skír hvað þetta varðar. Lánveitandi útbýr ólöglegt lán, býður mér að skrifa undir það og KAUPIR það svo af lánþega, þannig að vændiskaupin eru etv. ekki heppileg samlíking.

Nr. 23 | Sveinn Jóelsson | 29.07.2010 | 20:37:25 | [+] |

Frábær pistill !

Nr. 24 | Gísli | 29.07.2010 | 20:44:57 | [+] |

Frábær færsla þó ég myndi ekki sjálfur taka svona sterkt til orða :) Algjört rugl að ætlast til þess að stökkbreytt ólögleg lán breytist afturvirkt í lán sem enginn myndi nokkurn tíma veita!

Nr. 25 | Baldur K. | 29.07.2010 | 21:12:18 | [+] |

Einróma sammála þessum pistli.

Nr. 26 | Örn | 29.07.2010 | 21:35:13 | [+] |

Eins og talað úr mínu hjarta. Þetta myntkörfulið var ekkert að kvarta þegar það tók lánin og þá var þetta ekkert ólöglegt. Hvernig getur samningur milli tveggja aðila verið ólöglegar þannig að bara annar aðilinn braut lögin? Segjum að EUR væri núna 50 krónur. Myndi þessi hópur enn krefjast að fá að greiða miðað við upprunalega höfuðstólinn? Þetta er bara hópur af fólki sem hélt að steikatar gæsir myndu fljúga upp í þau!!!!!!!!!!!

Nr. 27 | Arnbjörn | 29.07.2010 | 21:39:26 | [+] |

Myntkörfulánshafar hættið að væla
og vitið að fylleríð er búið.
Það virkar ekki að vera með stæla
Og verður ekki aftur snúið.

Mig langar ekkert að borga sukkið
Sem þið lifðuð upp á lúkkið
Margur verður af aurum api
Og mér er sama þótt þið tapið,

Nr. 28 | Lilja | 29.07.2010 | 23:08:31 | [+] |

Frábær grein hvort sem um húmor eða alvöru er að ræða, þá er nokkur mörg sannleikskorn í þessari umfjöllun, ekki síst varðandi hina "heilögu" vandlætingu fórnarlamba myntkörfulána sem voru "neydd" til að undirrita ólöglega lánasamninga.

Undanfarið hafa Samtök ofurskuldara (kalla sig samtök heimilanna) farið offari og alger skoðanakúgun hefur ríkt í þjóðfélaginu og histería. Þessi grein er gott innlegg í þessa umræðu.

Nr. 29 | Kristján | 29.07.2010 | 23:16:04 | [+] |

Flottur pisitll eins og talað úr mínum munni

Nr. 30 | Nonni | 29.07.2010 | 23:27:29 | [+] |

Frábær pistill!

Nr. 31 | Ragga | 29.07.2010 | 23:54:16 | [+] |

Mér finnst eins og fólk átti sig ekki á alvarleikanum í því ef dómurinn verður látinn standa. Það mun hafa tvennt í för með sér, annars vegar mun þetta koma í veg fyrir frekari leiðréttingu ALLRA annarra lána og hins vegar munu 50 miljarðar leggjast á almenning í formi hærri þjónustugjala o.s.frv. Hugsið ykkur, þessi barátta verður til þess að engin leiðrétting fæst á verðtryggð lán, vegna frekju og yfirgngs naflaskoðara. Ég mun sjálfur hagnast verulega á þessum dómi af því ég er með gengistryggt lán af jeppa sem ég asnaðist til að kaupa, en frekar vill ég halda baráttunni áfram fyrir leiðréttingu ALLRA lána á Íslandi heldur en að losna við lánið mitt, halda eigninni og þurfa ekki að borga til baka og að Jón í næsta húsi þurfi að borga jeppann fyrir mig. Mér finnst það ömurlegt hvernig fólk hefur algjörlega misst sig í græðginni. Ég hef samúð með þeim sem hafa farið illa, svo sannarlega, og hef til dæmis sent peninga af því litla sem ég á til Hagsmunasamtaka heimilanna. En því miður þá virðist fólk bregðast um leið og það eygir einhverja von um gróða. Og ein mestu vonbrygðin eru að sjá fólk sem ég hef borið ómælda virðingu fyrir detta í þennan pytt. Ég er ekki einn um þessa skoðun, margir af vinsælustu bloggurum landins hafa viðrað þessa skoðun, þrátt fyrir að eiga það á hættu að vera rifnir á hol af naflaskoðurum.

Nr. 32 | Valur | 30.07.2010 | 0:26:40 | [+] |

Mér finnst eins og fólk átti sig ekki á alvarleikanum í því ef dómurinn verður látinn standa. Það mun hafa tvennt í för með sér, annars vegar mun þetta koma í veg fyrir frekari leiðréttingu ALLRA annarra lána og hins vegar munu 50 miljarðar leggjast á almenning í formi hærri þjónustugjala o.s.frv. Hugsið ykkur, þessi barátta verður til þess að engin leiðrétting fæst á verðtryggð lán, vegna frekju og yfirgngs naflaskoðara. Ég mun sjálfur hagnast verulega á þessum dómi af því ég er með gengistryggt lán af jeppa sem ég asnaðist til að kaupa, en frekar vill ég halda baráttunni áfram fyrir leiðréttingu ALLRA lána á Íslandi heldur en að losna við lánið mitt, halda eigninni og þurfa ekki að borga til baka og að Jón í næsta húsi þurfi að borga jeppann fyrir mig. Mér finnst það ömurlegt hvernig fólk hefur algjörlega misst sig í græðginni. Ég hef samúð með þeim sem hafa farið illa, svo sannarlega, og hef til dæmis sent peninga af því litla sem ég á til Hagsmunasamtaka heimilanna. En því miður þá virðist fólk bregðast um leið og það eygir einhverja von um gróða. Og ein mestu vonbrygðin eru að sjá fólk sem ég hef borið ómælda virðingu fyrir detta í þennan pytt. Ég er ekki einn um þessa skoðun, margir af vinsælustu bloggurum landins hafa viðrað þessa skoðun, þrátt fyrir að eiga það á hættu að vera rifnir á hol af naflaskoðurum.

Nr. 33 | Valur B | 30.07.2010 | 0:27:40 | [+] |

Of erfitt að lesa bloggið þitt með þennan svarta bakgrunn. Hef oft reynt, gefst alltaf upp. Kláraði núna í fyrsta (og seinasta) skipti. Too heavy.
LESS IS MORE design. Please.

Nr. 34 | Magga | 30.07.2010 | 0:31:14 | [+] |

Alger nautn þessi reiðilestur.... þetta er svo vel skrifað.

Nú er ég ekki með myntkörfulán á bakinu - en mér er alveg fyrirmunað að skilja þessi gremjufullu öfundarköst hjá mörgu fólki sem EKKI getur "hagnast" á dómi hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána!

Ég óttast að t.d. þeir sem eru með verðtryggð lán, hafi ekki siðferðisþrek til að una réttlæti - nema þeir sjálfir hagnist líka.

Hvorir eru þá á valdi grægðinnar?

Nr. 35 | GéTé | 30.07.2010 | 1:40:10 | [+] |

Hvernig getum við, Íslendingar, verið í vondum málum. Ég veit ekki betur en að fyrir hrunið hafi flestir átt sæmilegt líf. Lítið breyttist í raunverulega heiminum eftir hrun. Jafnvel 2010 eiga flestir í sig og á (amk. þeir sem hafa ekki ausið peningum sínum út skv. eigin samþykktum - við erum jú, sjálfstæð þjóð. Það að borga kjánalán eru okkar lög).

Okkur finnst bara eins og við þurfum að borga einhverjar skuldir sem risu úr atlantshafinu eins og risa flóðbylgja árið 2008.

Eru það þá einhverjar örbrigðamanneskjur úti í heimi sem við skuldum pening? Hvað voru þau að gera fyrir hrun? Fóru þau allt í einu að svelta þegar hrunið varð og þurftu nauðsynlega á peningum okkar að halda?

Peningar (eins og þeir þekkjast í dag) eru svo mikil steypa að það nær bara engri átt. Við hefðum átt að endurbyggja hagkerfið fyrir löngu. Ég reyndar vissi ekkert um það fyrr en á síðasta ári - hvað kerfið er virkilega brenglað (kerfi sem er dæmt til þess að enda í risaskuldasúpu allra innan kerfisins). Vandamál mitt (sama og flestra annarra) var að það hefur enginn nokkru sinni sagt mér að efast um peningakerfið og enginn hefur nokkurn tímann sagt mér hvernig kerfið virkar. Ekki stakt orð í grunnskóla. Ef eitthvað hefur verið prédikað, þá er það að lán (frá banka, með vöxtum) séu eðlilegasti hlutur í heimi.

Það væri stórskemmtilegt að fá þig til þess að blogga um fjármálakerfi heimsins (sér í lagi íslenska - einnig er saga bandaríkjadalsins ansi skrautleg).

Af hverju erum við að rífast um eitthvað sem er ekki til? Fólk skiptist á að ofan að vera algerlega sammála eða ósammála um þetta. Langmestur hluti peninga hefur ekkert á bak við sig nema orðin tóm. Á þetta að vera issue??

Satt best að segja skuldum við (vestrænir íbúar og þeir sem hafa það gott) örugglega margar milljónir til fátækra ríkja, hvers auðlinda og réttinda við höfum óbeint gengið á í fjöldamörg ár. Eitthvað myndu þau nú segja ef þau heyrðu um vesalings fólkið sem missti glænýja sérhannaða húsið sitt, með heita pottinum og nýja parketinu. Öll eigum við nú að vera fædd með sama rétt. Eða eru sumir kannski réttari en aðrir...

Nr. 36 | Tomage | 30.07.2010 | 1:41:29 | [+] |

Sko.. pointið hjá mér var aðallega þetta (af því að ég var byrjaður að röfla út um allt):

Af hverju eigum við að þurfa að rífast um þetta? Þetta á ekki að vera vandamál. Það þarf ekki að leysa hnútinn, heldur skera á hann.

Nr. 37 | Tomage | 30.07.2010 | 1:44:44 | [+] |

Margt satt og góð grein (nokkuð stórirt þó en það er kannski bara þinn stíll). Eins og ég skil greinina að þá er ekki verið að kvarta yfir því að gengistryggingin hafi verið daemd ólögleg heldur þá kröfu að vextirnir skuli standa. Að sumu leiti að þá hefur mér fundiist (af fréttum) að þessi fjármögnunarfyrirtaeki hafi farið offarri og verið miskunarlaus við lántakendur. Tekið bíla og taeki til sín á einhverju innan við hálvirði og selt síðan á fullu verði aftur (og fengið mismunin í vasan). Ég satt að segja vorkenni þessum fyrirtaekjum ekkert. En vitandi að við hin þurfum að borga brúsan (til að bjarga þessum ógeðslegu fyrirtaekjum) að þá er nú best að Íslenskir löglegir vextir gildi. Þá fá þessi fyrirtaeki einhvern skell (vegna gengissins) en þurfa sennilega samt ekki okkar peninga til að standa það af sér. Vildi samt að forhertustu fyrirtaekin mundu hverfa. Hins vegar er allt rétt hjá þer. Menn hafa búið við Íslenska krónu allt sitt líf. Vitað að hún hefur aldrei verið mjög stöðug. Líka það að á meðan þessi lán voru tekin að þá var íslenska krónan í þeim haeðum sem hún hefur aldrei náð áður. Bara það átti að vera nóg viðvörun um að taka ekki þessi lán vitandi að krónan mundi ekki vera svo sterk endalaust.
Takk annars - Kjarri.

Nr. 38 | Kjarri | 30.07.2010 | 5:51:53 | [+] |

Til hamingju Þórarinn Þórarinsson blaðamaður! Nú hefur yfirrugludallur RÚV (milljónkrónamaðurinn) baðað sig opinberlega í ritræpunni þinni: http://silfuregils.eyjan.is/2010/07/29/badabing-og-myntkorfufolkid/

Megið þið báðir frjósa á fimmvörðuhálsi (nei, ég segi nú bara svona - það má líka vera annars staðar á hálendinu) :)

Nr. 39 | Hilmar Hafsteinsson | 30.07.2010 | 6:52:48 | [+] |

ÉG haf sjaldan lesið jafn hressandi pistil og mikið er ég hjartanlega sammála þér. Ótrúleg dramatík í þessu samfélagi út af þessum úrskurði.

Nr. 40 | Brynjar | 30.07.2010 | 18:50:08 | [+] |

Takk fyrir að segja það sem meirihluti Íslendinga er að hugsa.

Nr. 41 | Arnar | 7.08.2010 | 10:08:53 | [+] |

Madur ad minu skapi, ertu einhleypur???

Nr. 42 | Eva | 8.08.2010 | 9:15:31 | [+] |

Jámm Eva, ég er á laflausu. Ert þú sæt?

Nr. 43 | Tóti sjálfur | 8.08.2010 | 14:29:21 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff