»  off record  »  Sætar í sólinni á heiðurslaunum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sætar í sólinni á heiðurslaunum
Laugardagur, 17. júlí 2010

Bloggið sem segir sex: V

Þótt ég nálgist fimmtugsaldurinn jafnt og þétt hef ég aldrei komist almennilega upp á lagið með að glápa úr mér augun á fallegar konur. Ég held að ástæðan sé fyrst og fremst sú að konurnar mínar hafa í gegnum tíðina verið svo sætar að ég sá hvorki þörf né ástæðu til þess að horfa á aðrar. Tók samt alltaf eftir því að aðrir fundu sig knúna til þess að afklæða þær með augunum.

Þær stormuðu í gegnum óbærilega létta tilveruna í sviðsljósi fallíska augnaráðsins. Mér fannst þetta fullkomlega eðlilegt og setti fram þá mannfræðilegu kenningu að sigurvegararnir í lífinu hefðu konu sér við hlið sem tapararnir yrðu að láta sér nægja að horfa á.

Staða mín í lífnu er öllu dapurlegri þessi misserin og eftir að hafa verið einhleypur í rúm tvö ár hef ég ítrekað verið að reka mig á að augu mín lifa sjálfstæðu lífi í hausnum á mér og hegða sér eins og ljóskastarar við þýskar fangabúðir í stríðsbíómynd. Nema auðvitað að þau staldra ekki við stríðsfanga og gyðinga á flótta heldur fallegar konur. Flestar einhverra hluta dökkhærðar, en ekki alveg allar.

Allar þessar stelpur voru saman komnar í miðborg Reykjavíkur í dag. Svo sætar og glaðar, flegnar og fínar. Ég undirgekkst því glaður hlutverk lúsersins og lét augun reika og staldraði stundum við það hversu ömurlega gæja margar þeirra voru með upp á arminn. En það gildir einu þar sem hlutverk karlmannsins í lífinu er alltaf það eitt að vera þreytandi og frekar treggáfað fylgitungl sem er í besta falli nothæfur lifandi dildó.

Aðalatriðið er auðvitað að konurnar sem auðga og fegra tilveruna með því einu að vera til og spóka sig á förnum vegi eiga verðlaun skilið. Margar hverjar ættu hreinlega að vera á heiðurslaunum listamanna fyrir það eitt að vera í sjálfum sér meira, fallegra og betra listaverk en megnið af því sem ríkislaunaðir listamenn framleiða.


| 20:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff